Austanstormur skekur landið

Vestan- og sunnanvert landið er sveipað gulum eða appelsínugulum ljóma …
Vestan- og sunnanvert landið er sveipað gulum eða appelsínugulum ljóma á viðvörunarkorti Veðurstofunnar. Skjáskot/Veðurstofa Íslands

Meirihluti landsins skartar gulum eða appelsínugulum viðvörunum á korti Veðurstofunnar, en varað er við stormviðri á komandi dögum. 

Suðausturland appelsínugult

Á Suðausturlandi verður gul viðvörun í gildi frá því klukkan 14 á morgun, mánudag, vegna hvassviðris og snjókomu. Vindur fer í 15 til 20 stig, skyggni takmarkað og öflugar hviður í vindstrengjum við fjöll. Akstursskilyrði verða erfið og færð gæti spillst. 

Klukkan 16 tekur svo við appelsínugul viðvörun, en austan stórhríð er í kortunum. Fer vindur þá upp í 20 til 28 metra á sekúndu, en þó hægari austan Öræfa. Talsverð snjókoma eða slydda verður með lélegu skyggni. 

Frá því klukkan 16 á mánudag, til klukkan 7, þriðjudagsmorgun, verður ekkert ferðaveður og hætta á foktjóni. 

Suðurland appelsínugult

Svipað veður verður á Suðurlandi og Suðausturlandi. Gul viðvörun tekur gildi fyrr, eða klukkan 11 mánudagsmorgun, og gildir til klukkan 14 en þá tekur sú appelsínugula við.

Verður appelsínugul viðvörun í gildi til klukkan 8 á þriðjudagsmorgun. Ekkert ferðaveður og hætt við foktjóni, en vindur verður á bilinu 20 til 28 metrar á sekúndu ásamt talsverðri snjókomu eða slyddu. 

Höfuðborgarsvæðið gult

Austan hvassviðri eða stormur, með vindstyrk á bilinu 15 til 23 metra á sekúndu, verður á höfuðborgarsvæðinu. Einnig eru líkur á snjókomu eða slyddu með takmörkuðu skyggni. 

Gul viðvörun tekur því gildi klukkan 15 og gildir til klukkan 3 aðfaranótt þriðjudags. Færð gæti spillst á þeim tíma og lausir munir fokið. 

Faxaflói appelsínugulur

Gul viðvörun tekur gildi á Faxaflóa klukkan 14 á morgun og verður í gildi uns appelsínugul viðvörun tekur við klukkan 17. Sú appelsínugula gildir til klukkan 23 sama kvöld. 

Akstursskilyrði verða því erfið vegna austan hvassviðris og snjókomu í upphafi, sem breytist í austan storm eftir því sem líður á daginn. Hviður kunna að fara yfir 40 metra á sekúndu í vindstrengjum við fjöll, til dæmis á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli. Einnig verður víða snjókoma eða slydda og því ljóst að á þessu tímabili verður ekkert ferðaveður og hætt við foktjóni. 

Miðhálendið gult

Austan og norðaustan stórhríð verður á miðhálendinu, þar sem búast má við að vindstyrkur verði á bilinu 20 til 28 metrar á sekúndu með lélegu skyggni. Því er ekkert ferðaveður. 

Viðvörunin tekur gildi klukkan 12 að hádegi á morgun og gildir til klukkan 11 að morgni þriðjudags. 

Breiðafjörður gulur

Í Breiðafirði verða vindstrengir við fjöll, sums staðar yfir 35 metrar á sekúndu en annars verður vindur á bilinu 18 til 23 metrar á sekúndu. Tekur viðvörunin gildi klukkan 15 á morgun og gildir til klukkan 7 morguninn eftir. 

Einnig má búast við snjókomu með takmörkuðu skyggni. Lausir munir gætu fokið og færð spillst. 

Vestfirðir appelsínugulir

Frá því klukkan 15 til klukkan 20 á morgun verður gul viðvörun í gildi á Vestfjörðum. Hviður kunna á því tímabili að fara yfir 35 metra á sekúndu á stöku stað auk þess sem líkur eru á skafrenningi og takmörkuðu skyggni. 

Við tekur svo appelsínugul viðvörun sem gildir til klukkan 6 að morgni þriðjudags. Eykur þá í vindinn og hviðurnar eflast um leið. Ekkert ferðaveður og hætt við foktjóni. 

Strandir og Norðurland vestra gult

Loks verður austan hvassviðri eða stormur á Ströndum og norðvestanverðu landinu. Gul viðvörun tekur gildi klukkan 17 annað kvöld og gildir til klukkan 7 morguninn eftir. 

Lausamunir gætu fokið og færð spillst.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert