Kristín tekin við sem framkvæmdastjóri Pírata

Kristín Ólafsdóttir
Kristín Ólafsdóttir Ljósmynd/Píratar

Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Pírata frá og með 16. janúar 2023. Tekur hún þar með við af Elsu Kjartansdóttur. 

Kristín er með meistaragráðu í mannréttindalögfræði og BS gráðu í viðskiptafræði.

Undanfarið ár hefur hún verið að læra um skaðaminnkandi nálgun og úrræði og starfað á því sviði, ásamt því að sinna kennslu. Hún var áður framkvæmdastjóri Píeta-samtakanna í 3 þrjú ár. 

„Við teljum okkur lánsöm að fá Kristínu til liðs við okkur, en hún hefur mikla og góða reynslu sem mun nýtast vel í störfum okkar flokks,“ segir Tinna Helgadóttir, gjaldkeri Pírata.

Kristín segist hlakka til að takast á við þetta nýja verkefni og láta jafnframt gott af sér leiða á meðan. “Píratar eru í mikilli sókn og kraftur grasrótarinnar er áþreifanlegur. Ég kem til með að gera mitt besta til að halda utan um góðan hóp og styðja við reksturinn og það merkilega starf sem nú þegar hefur verið unnið og þau fjölbreyttu verkefni sem framundan eru.”

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert