Hafi aldrei ráðgast við Eflingu

Sólveig Anna telur ríkissáttasemjara aðeins hafa boðað sig á fund …
Sólveig Anna telur ríkissáttasemjara aðeins hafa boðað sig á fund því hún frétti af fyrirætlunum hans. mbl.is/Hákon

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir ríkissáttasemjara ekki á neinum tímapunkti hafa ráðgast við sig áður en hann tók ákvörðun um að leggja fram miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Hann hafi hins vegar rætt fyrirætlanir sínar við fjölda annarra, meðal annars við formenn félaga sem tilheyra ASÍ, á kaffistofu í húsakynnum embættisins.

Sólveig segist hafa frétt af þessum samtölum frá manni ótengdum Eflingu sem starfar í verkalýðshreyfingunni. Þetta kemur fram í færslu sem hún ritaði á Facebook fyrr í dag.

Í kjölfarið hafi hún sent Aðalsteini Leifssyni ríkissáttasemjara tölvupóst og spurt hvort hann væri að undirbúa miðlunartillögu í deildunni í samráði við SA. Aðalsteinn hafi svarað því til að hann hafi ítrekað verið spurður af því, meðal annars af fólki í öðrum stéttarfélögum, hvort miðlunartillaga kynni vera til lausnar deilunnar.

Hótaði að grípa til aðgerða

„Hann fyrirskipaði mér svo að koma á fund með mjög stuttum fyrirvara. Ég sagðist ekki geta boðað samninganefnd félagsins á fund með svo stuttum fyrirvara, sökum þess að hún væri mönnuð fólki sem væri í vinnu og þyrfti í það minnsta smá fyrirvara til að fá leyfi frá vinnu. Aðalsteinn sinnti þessu engu og hótaði að grípa til ótilgreindra „aðgerða“ gegn mér ef að ég kæmi ekki á fund,“ skrifar Sólveig meðal annars.

Á fundinum sem var haldinn morguninn eftir hafi ríkissáttasemjari afhent henni fullbúna miðlunartillögu ásamt skjali um „Framkvæmd og fyrirkomulag atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu ríkissáttasemjara“.

Efling hefur ekki enn orðið við kröfu ríkissáttasemjara um að afhenda félagaskrá, en til þess að hægt sé að greiða atkvæði um miðlunartillöguna þarf hún að vera til grundvallar. Ríkissáttasemjari hefur leitað til Héraðsdóms Reykjavíkur til að fá úr skorið hvort Eflingu beri ekki að afhenda félagaskrána. Málið verið tekið fyrir hjá dómstólnum í dag.

Vildi losna við hana úr húsi 

Sólveig segist hafa sagt ríkissáttasemjara það aftur og aftur að tillagan fæli í sér að Eflingarfólk fengi að allt að 20 þúsund krónum lægri hækkanir en meðlimir í öðrum félögum Starfsgreinasamabandsins., vegna ólíkrar samsetningar félagahópsins.

„Ríkissáttasemjari brást ekki við neinum athugasemdum frá mér og sýndi engan vilja til að meðtaka þær, þrátt fyrir að í klukkutíma reyndi ég af mikilli alvöru að koma honum í skilning um hversu hræðileg og röng ákvörðun hans væri. Í lok fundarins spurði ég hvenær hann ætlaði sér að birta tillöguna opinberlega. Hann svaraði að það yrði seinna um daginn. Þegar ég gekk út af fundinum varð mér ljóst að ríkissáttasemjara lá á að losna við mig úr húsi vegna þess að hann var að hefja blaðamannafund kl. 11 til að segja þar öllum frá miðlunartillögu sinni.“

Segir Sólveig einu ástæðuna fyrir því að Aðalsteinn hafi kallað hana fund vera að hún hafði samband við hana þegar hún frétti af tillögunni frá þriðja aðila.

„Hin augljósa niðurstaða er þessi: Ríkissáttasemjari braut lög. Hann hefur eflaust talið, ásamt ráðgjöfum sínum og samverkafólki, að sökum þess að forysta Eflingar er „umdeild“ kæmist hann upp með það. En þar hafði hann rangt fyrir sér. Hann mun ekki komast upp með tilraun sína til að svipta Eflingu sjálfstæðum samningsrétti. Það mun aldrei gerast.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert