KA harmar hoppukastalaslysið

Samsett mynd

Knattspyrnufélagi Akureyrar (KA) þykir miður að ákæruvaldið hafi ákveðið að ákæra tvo sjálfboðaliða félagsins vegna hoppukastalaslyss sem varð sumarið 2021, þar sem eigandi og ábyrgðaraðili hoppukastalans hefur ítrekað lýst ábyrgð sinni á slysinu í fjölmiðlum.

Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.

KA harmar það slys sem varð sumarið 2021 þegar hoppukastali tókst á loft með þeim hörmulegu afleiðingum sem af því hlaust. Hugur okkar í KA hefur fyrst og fremst verið hjá þeim sem fyrir þessu skelfilega slysi urðu. Svo verður áfram.

Fimm hafa verið ákærðir vegna hópslyssins, þar af tveir sem störfuðu sem sjálfboðaliðar á vegum félagsins þegar slysið varð, en handknattleiksdeild félagsins tók að sér að útvega starfsmenn sem áttu að sinna miðasölu og umsjón svæðisins fyrir eiganda og ábyrgðaraðila leiktækisins.

Nú hefur komið fram að tveimur sjálfboðaliðum á vegum Handknattleiksdeildar KA og KA/Þór hafa verið birtar ákærur vegna þessa máls. Frjáls félagasamtök líkt og KA vissulega er byggja tilvist sína á miklu og fórnfúsu starfi sjálfboðaliða. Okkur þykir miður að ákæruvaldið hafi ákveðið að fara þessa leið í ljósi þess að eigandi og ábyrgðaraðili hoppukastalans hefur ítrekað lýst ábyrgð sinni á slysinu í fjölmiðlum. En um leið sýnum við því skilning að málið þarf að reka áfram í þeim farvegi sem það er nú í þar til niðurstaða fæst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert