Lýsa yfir trausti til Heimis þrátt fyrir ákæru

Heimir Örn Árnason efst til vinstri, við hlið hans Andri …
Heimir Örn Árnason efst til vinstri, við hlið hans Andri Teitsson og svo Halla Björk Reynisdóttir. Neðri röð frá vinstri: Hlynur Jóhannsson, Hulda Elma Eysteinsdóttir og Lára Halldóra Eiríksdóttir. Samsett mynd

Bæjarfulltrúar í meirihluta bæjarstjórnar á Akureyri lýsa yfir „fullu og óskoruðu trausti til Heimis Arnar Árnasonar, forseta bæjarstjórnar Akureyrar,“ að því er fram kemur í yfirlýsingu frá meirihlutanum.

Heimir er einn af fimm sakborningum sem ákærðir hafa verið í tengslum við hoppukastalaslysið sem varð á Akureyri árið 2021.

Í yfirlýsingunni segir að Heimir Örn hafi á þeim tíma verið formaður unglingaráðs handknattleiksdeildar KA og KA/Þórs sem hafi verið í samstarfi við eigendur hoppukastalans og að hann sé ákærður sem slíkur.

„Forseti bæjarstjórnar skorast ekki undan ábyrgð á nokkurn hátt en rétt er að undirstrika að Heimir Örn Árnason gegndi engum trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélagið þegar slysið átti sér stað. Ákæran fer sína leið fyrir dómstólum og snertir ekki núverandi hlutverk hans innan bæjarstjórnar Akureyrar.“

Lýsa yfir fullu og óskoruðu trausti

Að lokum skrifa undir yfirlýsinguna bæjarfulltrúarnir Andri Teitsson, Halla Björk Reynisdóttir, Hlynur Jóhannsson, Hulda Elma Eysteinsdóttir og Lára Halldóra Eiríksdóttir. 

„Við undirrituð lýsum yfir fullu og óskoruðu trausti til Heimis Arnar Árnasonar, forseta bæjarstjórnar Akureyrar, og starfa hans í þágu sveitarfélagsins og bæjarbúa.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert