Miklar líkur á að veðrið hafi áhrif á samgöngur

Vindaspá síðdegis í dag.
Vindaspá síðdegis í dag. Kort/Veðurstofa Íslands

Vaxandi austanátt er í dag og má búast við að vindur verði 15 til 25 m/s síðdegis í dag en 23 til 28 m/s syðst á landinu fram á kvöld. Mun hægari vindur er á Norðaustur- og Austurlandi. Það byrjar að snjóta sunnantil og verður talsverð ofankoma fram á kvöld.

Gular og appelsínugular veðurviðvaranir taka gildi seinni partinn í dag og hefur ríkislögreglustjóri lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna veðurs á Vest­fjörðum, Vest­ur­landi, Suður­nesj­um, Vest­manna­eyj­um og Suður­landi. 

Mikl­ar lík­ur eru að veðrið muni hafa áhrif á sam­göng­ur. Þá hefur Veðurstofan einnig varað við foktjóni.

Fyrsta gula veðurviðvörunin byrjar á hádegi á Suðurlandi. Þar er varað við snörpum vindhviðum, lélegu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum. Klukkan tvö er appelsínugul viðvörun fyrir það svæði og gul veðurviðvörun fyrir Faxaflóa, miðhálendið og Suðausturland.

Seinni partinn í dag verða viðvaranir auk þess í gildi á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Breiðafirði. Appelsínugular viðvaranir verða í gildi á Vestfjörðum, Faxaflóa, Suðurlandi og Suðausturlandi.

Austan hvassviðri eða stormur

Fyrir vestan er spáð austan hvassviðri eða stormi, 15 til 23 m/s og hviðum, sums staðar yfir 40 m/s í vindstrengjum við fjöll. Þá eru einnig líkur á skafrenningi með takmörkuðu skyggni.

Svipaða sögu er að segja af Faxaflóa, austan stormur eða rok, 18 til 25 m/s og hviður yfir 40 m/s í vindstrengjum við fjöll, t.d. á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli. Þá má einnig búast við snjókomu og lélegu skyggni.

Á Suðausturlandi verður hvassast vestan Öræfa, austan og norðaustan stormur eða rok, 18 til 28 m/s.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert