„Hægt að vinna mikið tjón með þessu“

Olíutankar í Örfirisey.
Olíutankar í Örfirisey. mbl.is/Árni Sæberg

„Það er öllum ljóst að það er hægt að vinna mikið tjón með þessu,“ segir Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Olíudreifingar, um fyrirhugað verkfall Eflingar um miðjan febrúarmánuð.

Rúmlega 20 félagsmenn í stéttarfélaginu keyra olíubíla fyrir Olíudreifingu.

„Það sjá allir að þegar eldsneyti og flutningar frá Örfirisey stöðvast verður mikið tjón úti í samfélaginu,“ bætir hann við, en þar er olíubirgðastöð fyrirtækisins staðsett. 

Hörður Gunnarsson.
Hörður Gunnarsson.

Hörður segir málið háalvarlegt en ótímabært sé að tjá sig frekar um það á þessu stigi. Enn eigi eftir að skera úr um lögmæti verkfallsaðgerða Eflingar hjá Félagsdómi, auk þess sem niðurstaða atkvæðagreiðslu komi ekki fyrr en eftir helgi.

Kjör­stjórn Efl­ing­ar hef­ur boðað til at­kvæðagreiðslu um frek­ari verk­föll fé­lags­manna sem starfa hjá hót­el­um Reykja­vík Ed­iti­on og Berjaya (áður Icelanda­ir hotels) og hjá Sam­skipum, Ol­íu­dreif­ingu og Skelj­ungi.

At­kvæðagreiðslurn­ar hefjast á há­degi á föstu­dag­inn og munu standa til klukk­an 18 á þriðju­dag­inn eftir viku. Verði boðun verk­fall­anna samþykkt hefst vinnu­stöðvun á há­degi 15. fe­brú­ar og er hún ótíma­bund­in.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert