SA höfða mál gegn Eflingu

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri …
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA í baksýn. mbl.is/Hákon

Samtök Atvinnulífsins ætla að höfða mál gegn Eflingu fyrir Félagsdómi. Þetta staðfestir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við mbl.is.

Eins og kunnugt er samþykkti starfsfólk Íslandshótela sem starfar undir kjarasamningi Eflingar tillögu um boðun verkfalls. Niðurstaðan var kunngjörð í gær en atkvæðagreiðslan stóð yfir frá há­degi sl. þriðju­dags, til klukk­an 20 í gærkvöld. 

Að sögn Halldórs telja SA boðun verkfallsins ólögmæta. Gerir hann ráð fyrir að málið verði dómtekið fyrir helgi. Hann vildi þó ekki tjá sig nánar um stefnuna en hún verður gerð opinber síðar í dag. 

Á vef Efl­ing­ar seg­ir að 189 hafi tekið þátt af 287 sem voru á kjör­skrá og kjör­sókn því 66 pró­sent. 124 greiddu at­kvæði með verk­falli, 58 greiddu at­kvæði gegn og 7 sem óskuðu að taka ekki af­stöðu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert