Afnema eigi tolla til að stemma stigu við verðbólgu

Frá fundinum í matvælaráðuneytinu. Frá vinstri: Guðrún Ragna Garðarsdóttir formaður …
Frá fundinum í matvælaráðuneytinu. Frá vinstri: Guðrún Ragna Garðarsdóttir formaður FA, Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR/LÍV, Berglind Häsler aðstoðarmaður ráðherra og Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra. Ljósmynd/Félag atvinnurekenda

Fulltrúar VR, Landssambands íslenzkra verzlunarmanna, Rafiðnaðarsambandsins og Félags atvinnurekenda áttu í morgun fund með Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra til að ræða tillögur félaganna um lækkun og niðurfellingu tolla.

Tillögurnar beinast fyrst og fremst að tollum sem vernda ekki hefðbundna sauðfjár- og nautgriparækt.

Þrjár tillögur voru lagðar fyrir Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, á fundinum. Tillögurnar eru allar byggðar á eldri lögum Samkeppniseftirlitsins og Samráðsvettvangs um aukna hagsæld.

  • Tollar verði felldir niður af alifugla- og svínakjöti og frönskum kartöflum. Tollar falli niður af blómum sem ekki eru ræktuð á Íslandi. Tollar á t.d. túlipönum og rósum falli niður á tímabilum þegar innlend framleiðsla annar ekki eftirspurn.
  • Innlendum afurðastöðvum búvöru og vinnslustöðvum í þeirra eigu verði óheimilt að bjóða í eða sækjast eftir tollkvóta fyrir innfluttar landbúnaðarafurðir, sbr. tillögur Samkeppniseftirlitsins frá 2012. Skoðaðar verði leiðir til að úthluta tollkvótum án endurgjalds, sbr. sömu tillögur.
  • Tollar á mjólkur- og undanrennudufti og smjöri falli niður, sbr. tillögur Samkeppniseftirlitsins frá 2015.

Fundur samtakanna um tollamál með Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra er áformaður í næstu viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert