Óskað eftir vitnum að slysi við IKEA

Lögregla biður vitni að umferðarslysi við IKEA í gær, þriðjudag, …
Lögregla biður vitni að umferðarslysi við IKEA í gær, þriðjudag, að hafa samband.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Reykjanesbraut í Garðabæ í gærmorgun, þriðjudag. Tilkynning um slysið barst kl. 8.21 en það varð á móts við IKEA.

Rákust þar þrjár bifreiðar saman eftir því sem segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og er talið að ein þeirra hafi bilað og tveir ökumenn sem á eftir komu ekki náð að bregðast við í tæka tíð. Tveir ökumannanna voru fluttir á slysadeild en allar bifreiðirnar voru fjarlægðar af vettvangi með dráttarbíl.

Vitni að slysinu eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið SaevarG@lrh.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert