Beint: Borgarsamgöngur til framtíðar

Hver er lausnin á aukinni umferð og töfum samhliða því?
Hver er lausnin á aukinni umferð og töfum samhliða því? mbl.is/Eggert Jóhannesson

Umferð á höfuðborgarsvæðinu hefur stigmagnast á undanförnum árum með tilheyrandi töfum, hávaða og mengun. Verkfræðingafélag Íslands stendur fyrir málþingi í dag þar sem meðal annars er spurt hvort kominn sé tími til að hugsa daglegar samgöngur upp á nýtt. Þar verður framtíðarsýn ríkis og borgar og eins stærsta vinnurstaðar í borginni kynnt.

Málþingið fer fram frá 8:30 til 10:00 og hægt er að fylgjast með því hér að neðan.

Dagskrá:

Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins - verkefni og fjármögnun.
Þröstur Guðmundsson, forstöðumaður verkefna og áætlana hjá Betri samgöngum.

Viðfangsefni í borgarsamgöngum.
Þorsteinn Hermannsson, forstöðumaður þróunar hjá Betri samgöngum.

Framtíðarsýn um svæði Háskóla Íslands. Borgarlínan - "Green Campus"
Hrund Ólöf Andradóttir, prófessor við umhverfis- og verkfræðideild Háskóla Íslands.

Fundarstjóri: Lilja Karlsdóttir, samgönguverkfræðingur, sviðsstjóri hjá VSB verkfræðistofu.

Málþingið er skipulagt af Deild stjórnenda og sjálfstætt starfandi í VFÍ. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert