Efling snýr sér til héraðsdóms

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Efling hefur ákveðið að skjóta kröfu sinni um ógildingu miðlunartillögu ríkissáttasemjara til héraðsdóms vegna viðbragðsleysis ráðherra við stjórnsýslukæru. Mun Efling krefjast ógildingar á miðlunartillögunni sem kynnt var af ríkissáttasemjara 26. janúar.

Í tilkynningu sem Efling sendi á fjölmiðla segir að ákvörðunin sé tekin vegna viðbragðsleysis Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra við stjórnsýslukæru Eflingar.

„Efling hefur frá upphafi hafnað lögmæti tillögunnar, sem lögð var fram þvert á ákvæði laga um að ráðgast bera við deiluaðila og er auk þess í einu og öllu samhljóða kröfum Samtaka atvinnulífsins. Öll heildarsamtök launafólks á Íslandi hafa gagnrýnt meðhöndlun ríkissáttasemjara á málinu,“ segir í tilkynningunni.

Verður stefnan lögð fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í dag og óskað verður eftir flýtimeðferð.

Í tilkynningunni er haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar að hún telji ríkissáttasemjara hafa misnotað valdheimildir sínar. „Við höfum sagt frá byrjun að miðlunartillaga ríkissáttasemjara er lögleysa og markleysa. Embættið hefur misnotað valdheimildir sínar til að taka afstöðu með sjónarmiðum annars aðilans í kjaradeilu og reyni að svipta hinn aðilann, sem í þessu tilviki er tekjulægsta verkafólk landsins, sjálfstæðum samningsrétti sínum. Við eigum heimtingu á að dómstólar fjalli um þetta framferði,“ er haft eftir henni.

Tvö önnur mál tengd kjaradeilunni eru nú fyrir dómstólum. Annars vegar verður kæra ríkissáttasemjara á hendur Eflingu tekin fyrir í héraðsdómi, en ríkissáttasemjari krefst þess að Efling leggi fram félagskrá sína vegna atkvæðagreiðslu um miðlunartillöguna.

Hins vegar er það mál SA gegn Eflingu vegna meintrar ólögmætrar boðunar verkfalls, en málið verður tekið fyrir í héraðsdómi á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert