Hækka gjöld í neyðarskýlum fyrir önnur sveitarfélög

Velferðarráð ákvað á fundi sínum í gær að hækka gistináttagjald …
Velferðarráð ákvað á fundi sínum í gær að hækka gistináttagjald annarra sveitarfélaga fyrir gistingu í neyðarskýlum Reykjavíkurborgar í 46 þúsund krónur á nóttu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Velferðarráð Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að hækka gistináttagjald annarra sveitarfélaga fyrir gistingu í neyðarskýlum Reykjavíkurborgar í 46 þúsund krónur á nóttu til að standa undir raunkostnaði við þjónustuna. 

Þetta var samþykkt á fundi í gær þar sem að lögð var áhersla á að fleiri sveitarfélög yrðu að koma að þjónustu við heimilislaust fólk og skorað var á ríkið að koma með sama hætti að fjármögnun og skipulagi málaflokksins eins og tíðkast erlendis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni.

Þá var einnig samþykkt að vinna að útfærslu á þrepaskiptri þjónustu.

„Í því felst að takmarka þann tíma sem einstaklingar þurfa að reiða sig á neyðarskýli en leggja meiri áherslu á tímabundið áfangahúsnæði, þar sem einstaklingsmiðaður stuðningur, endurhæfing og mat á þjónustuþörfum á sér stað.

Eftir dvöl í áfangahúsnæði liggi fyrir hvaða búsetuform og / eða stuðningur henti og viðkomandi fái stuðning inn í þá búsetu. Kostnaðarmetin útfærsla á þessu fyrirkomulagi verður hluti af endanlegri tillögu að aðgerðaáætlun sem lögð verður fyrir ráðið í maí.“

Sex til viðbótar úthlutað

Nýverið tók til starfa endurbætt áfangahúsnæði fyrir konur. Í tilkynningunni kemur fram að fimm konur séu þar en að á næstu vikum verði sex til viðbótar úthlutað. 

Þá verður nýtt áfangahúsnæði fyrir 8 karla opnað á næstu mánuðum. Á fundinum var jafnframt lagt til að velferðarsviði verði falið að leita liðsinnis Eignaskrifstofu Reykjavíkurborgar með að finna húsnæði sem gæti hentað fyrir hjúkrunarrými fyrir einstaklinga með miklar og flóknar þjónustuþarfir. 

Hugmyndafræði innleidd

Stefnan um málefni heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir var samþykkt í október 2019 og gildir til ársins 2025.

Meðal annars hefur hugmyndafræðin „húsnæði fyrst“ verið innleidd og samfara því stökum íbúðum, smáhúsum og íbúðakjörnum fjölgað.

Þá hefur Vettvangs- og ráðgjafarteymi Reykjavíkurborgar verið styrkt og nýtt neyðarskýli fyrir karla opnað. Nýlega var stórum áfanga náð í innleiðingu stefnunnar þegar heimahjúkrun Reykjavíkurborgar gerði samning við Sjúkratryggingar Íslands um heilbrigðisþjónustu á vettvangi.

Endurskoða núverandi aðgerðaáætlun

Stýrhópurinn um endurskoðun aðgerðaáætlunar var skipaður í desember 2021 en formaður velferðarráðs, Heiða Björg Hilmisdóttir, veitir honum forystu.

„Markmið og hlutverk hópsins er að endurskoða núverandi aðgerðaáætlun stefnu í málefnum heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir og leggja fram tillögur að nýjum eða breyttum aðgerðum. Sérstök áhersla er lögð á stöðu heimilislausra kvenna í endurskoðun aðgerðaáætlunarinnar en á fundi velferðarráðs var kynnt þarfagreining fyrir nýtt neyðarskýli fyrir konur og áfangahúsnæði.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert