Herferð gegn kynferðislegri áreitni á vinnustöðum

Vinnueftirlitið hefur hleypt af stað nýrri herferð gegn kynferðislegri áreitni …
Vinnueftirlitið hefur hleypt af stað nýrri herferð gegn kynferðislegri áreitni á vinnustöðum undir yfirskriftinni: #TökumHöndumSaman. Ljósmynd/Vinnueftirlitið

Vinnueftirlitið hefur hleypt af stokkunum nýrri herferð gegn kynferðislegri áreitni á vinnustöðum þar sem tilgangurinn er að hvetja vinnustaði til að grípa til aðgerða með forvörnum, fræðslu og markvissum viðbrögðum þegar slík mál koma upp.

Yfirskrift verkefnisins er Tökum höndum saman og er aðgerðarvakningin unnin í samtarfi við samtök aðila vinnumarkaðarins, embætti landlæknis, Jafnréttisstofu og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið.

„Með aðgerðavakningunni viljum við hvetja vinnustaði til að gefa skýr skilaboð um að kynferðisleg áreitni sé ekki liðin og að brugðist verði við gerist þess þörf,“ er haft eftir Hönnu Sigríði Gunnsteinsdóttur, forstjóra Vinnueftirlitsins. „Það er til mikils að vinna því kynferðisleg áreitni getur valdið starfsfólki heilsutjóni og haft neikvæð áhrif á árangur, framleiðni og orðspor vinnustaða.“

Nýtt fræðsluefni hefur verið þróað og gert aðgengilegt á vef Vinnueftirlitsins, til að mynda myndskeið um birtingamyndir og afleiðingar kynferðislegrar áreitni og æskileg viðbrögð vinnustaða og starfsfólks þegar slík mál koma upp. Einnig er hægt að nálgast nýtt stafrænt flæðirit fyrir vinnustaði sem skýrir feril máls með myndrænum hætti, en því fylgir gátlisti um mikilvæg atriði sem þarf að hafa í huga til að tryggja góða málsmeðferð. Bæði fyrir ætlaða þolendur og gerendur.

Hér fyrir neðan má sjá sjónvarpsauglýsingu fyrir herferðina:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert