N4 óskar eftir gjaldþrotaskiptum

Merki N4.
Merki N4. Mynd/N4

Miðillinn N4 ehf. hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum eftir að tilraunir til að tryggja framtíð fyrirtækisins báru ekki árangur.

Frá þessu greinir fyrirtækið í tilkynningu á vefsíðu sinni.

Þar er bent á að N4 hafi framleitt íslenskt efni undanfarin 15 ár.

Kaflanum lokið að sinni

„Fólkið í landinu hefur verið í brennidepli í allri framleiðslu efnis. N4 hefur varðveitt sögu þjóðarinnar. Þessum kafla í sögu fjölmiðla á Íslandi er lokið að sinni,“ segir þar.

„Rekstur fjölmiðils eins og N4 hefur byggt á óeigingjörnu starfi starfsfólks í sífellt erfiðara rekstrarumhverfi fjölmiðla á Íslandi. Fyrir það á starfsfólkið mikið hrós skilið. 

Stjórn fyrirtækisins harmar þessa niðurstöðu, ekki síst í ljósi þess að N4 hefur verið eini fjölmiðillinn sem framleitt hefur íslenskt sjónvarpsefni utan höfuðborgarsvæðisins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert