Tilkynnt um efnaleka í Kópavogslæk

Vegfarandi tilkynnti málið.
Vegfarandi tilkynnti málið. Ljósmynd/Styrmir Kári

Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um efnaleka í Kópavogslæk í gærkvöldi. Vegfarandi tilkynnti málið.

„Það er eins og einhversstaðar hafi farið olía farið í ræsi,“ segir varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í samtali við mbl.is.

Heilbrigðiseftirlitinu hefur verið tilkynnt um málið.

Síðasti sól­ar­hring­ur var mjög anna­sam­ur hjá slökkviliðinu, en farið var í níu út­köll á dælu­bíl­um. Einnig voru 102 boðanir á sjúkra­bíl­um, þar af voru 30 for­gangs­verk­efni og 22 eft­ir miðnætti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert