Drífa Snædal verður talskona Stígamóta

Drífa Snædal tekur við sem talskona Stígamóta.
Drífa Snædal tekur við sem talskona Stígamóta. Ljósmynd/Aðsend

Drífa Snædal, fyrrverandi forseti Alþýðusambands Íslands, hefur verið ráðin talskona Stígamóta frá og með 1. mars næstkomandi.

Hún tekur við starfinu af Steinunni Gyðu- og Guðjónsdóttur sem hverfur til annarra starfa samkvæmt tilkynningu frá samtökunum.

Drífa er ekki ókunnug málaflokknum en hún stýrði Samtökum um kvennaathvarf á sínum tíma og hefur beitt sér í jafnréttismálum, gegn mansali og kynbundinni og kynferðislegri áreitni.

Haft er eftir Drífu í tilkynningunni að hún hlakki mikið til að starfa með og fyrir Stígamót og að demba sér í baráttuna með því góða fólki sem kemur að starfinu.

„Stígamót hafa haft afgerandi áhrif á samfélagsumræðuna síðustu áratugi og veitt þúsundum brotaþola aðstoð vegna afleiðinga ofbeldis. Stígamót eru hreyfiafl sem eiga fáa sinn líka.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert