Halla býður fram krafta sína í VR

Halla Gunnarsdóttir
Halla Gunnarsdóttir mbl.is/Kristinn Magnússon

Halla Gunnarsdóttir hefur boðið fram krafta sína í stjórn VR til næstu tveggja ára. Segir hún í tilkynningu að hún vilji beita sér fyrir sameinaðri verkalýðshreyfinu í næstu kjaraviðræðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Höllu. 

Verri niðurstaða vegna sundrungar 

„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér til setu í stjórn VR til næstu tveggja ára. Þótt innan verkalýðshreyfingarinnar sé deilt um margt, virðist nokkur samhljómur um að sú kjarasamningalota sem nú stendur yfir hafi skilað launafólki og íslensku samfélagi verri niðurstöðu vegna þess hversu sundruð hreyfingin gekk til kjaraviðræðna. Sameinuð verkalýðshreyfing getur gert kröfur á bæði atvinnurekendur og stjórnvöld til að tryggja raunverulegar kjarabætur og stuðla að jöfnuði, fremur en breiðari gjá milli ríkra og fátækra. Með því er ekki sagt að full samstaða geti eða þurfi að nást í einu og öllu. En það er til mikils að vinna að efla samstöðuna þar sem það er hægt.

VR er stærsta stéttarfélag á Íslandi og ég tel mikilvægt að forysta þess fari fram af yfirvegun og festu, bæði í baráttunni fyrir bættum kjörum félagsfólks og innan verkalýðshreyfingarinnar. Sem félagsmanni í VR rennur mér blóðið til skyldunnar,“ segir Halla í tilkynningunni. 

Skattkerfisbreytingar og jöfnuður

„Hljóti ég brautargengi í stjórn félagsins mun ég vinna í þágu sameinaðrar og kraftmikillar verkalýðshreyfingar. Ég mun taka harða afstöðu gegn öllum tilraunum til að veikja stéttarfélög og beita mér fyrir eftirfarandi stefnumálum:

• vinnumarkaði sem styður við launafólk fremur en að vænka hag þeirra sem mest eiga,

• skattkerfisbreytingum sem stuðla að jöfnuði,

• húsnæðisstefnu sem sem gengur út á að viðurkenna húsnæði sem grunnþörf fólks, en ekki gróðamöguleika fyrir fjárfesta

• heilbrigðis- og velferðarmálum þar sem fólk er í fyrirrúmi,“ segir í tilkynningu frá Höllu.

Halla sagði starfi upp starfi sínu sem framkvæmdastjóri ASÍ í september á síðasta ári. Þá var hún m.a. aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar í heilbrigðisráðuneyti sem og í dómsmálaráðuneyti.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert