Jarðskjálftarnir sjást vel á mælum Veðurstofunnar

Frá Aleppo í Sýrlandi.
Frá Aleppo í Sýrlandi. AFP/Rami al Sayed

Jarðskjálftarnir sem gengu yfir Tyrkland og Sýrland í morgun sjást vel á mælum Veðurstofu Íslands. 

„Svona stórir skjálftar koma fram um allan heim,“ segir Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofunni, sem svaraði spurningum blaðamanns í fjarveru náttúruvársérfræðings. 

Stærsti skjálftinn mældist 7,8 að stærð og varð klukkan 17 mínútur yfir fjögur í morgun. Fjöldi eftirskjálfta hafa fylgt í kjölfarið. 

Yfir 1.200 manns eru látn­ir.
Yfir 1.200 manns eru látn­ir. AFP/Rami al Sayed

Tim Larsen, jarðskjálftafræðingur á jarðfræðistofnun Danmerkur, sagði við AFP-fréttaveituna að skjálftarnir hafi einnig sést vel á mælum á Grænlandi. 

Stóri skjálftinn sást á mælum í Borgundarhólmi rúmum fimm mínútum eftir að skjálftinn varð í Tyrklandi. Það tók hann átta mínútur að sjást á mælum á Grænlandi. 

Óli Þór nefnir að um tvær bylgjur fylgi jarðskjálftum. Sú fyrri týnist í möttli jarðar en sú sem fer eftir yfirborði jarðar finnist frekar. 

„Yfirleitt þegar að það eru svona stórir skjálftar þá sýna allar stöðvar hér á landi útslag. Þá veit maður að þetta er einhversstaðar langt í burtu,“ segir hann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert