Rótin fær um hálfa milljón króna

Rótin er félag um velferð og lífsgæði kvenna.
Rótin er félag um velferð og lífsgæði kvenna. AFP

Félags- og vinnumálaráðuneytið hefur veitt félaginu Rótinni styrk upp á tæpa hálfa milljón króna. Rótin er félag um velferð og vellíðan kvenna og er styrkurinn veittur vegna alþjóðlegrar ráðstefnu sem félagið mun standa fyrir í haust.

Ráðstefnan verður haldin 1.-2. nóvember og fjallar hún um stefnumótun í áfengis- og vímuefnamálum með sérstaka áherslu á hinsegin fólk, kyn/konur, skaðaminnkun, réttarvörslukerfi, heimilislausar konur og eldri konur.

Áhersla verður lögð á breytingar sem eru að verða eða sem eru taldar þurfa að eiga sér stað, í stefnumótun og þjónustu við fólk í skaðlegri vímuefnanotkun með tilliti til réttinda. Markmið ráðstefnunnar er að tengja fagfólk og stefnumótendur við sérfræðinga í fremstu röð.

Rótin var stofnuð árið 2013 og er félag um velferð og lífsgæði kvenna. Félagið sér meðal annars um rekstur á Konukoti í Eskihlíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert