Veitingastaður reykræstur í Vesturbænum

Ekki var um miklar skemmdir að ræða.
Ekki var um miklar skemmdir að ræða. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út í dag vegna mikils reyks á veitingastaðnum Asia food sem er í sömu verslunareiningu og Vesturbæjarís við Hagamel í Vesturbænum.

Varðstjóri slökkviliðsins sagði í samtali við mbl.is að ekki hafi verið um stórmál að ræða. Pottur hafi gleymst á eldavél og mikill reykur hafi verið.

Ekki hafi verið um neinar skemmdir að ræða og slökkvilið hafi eingöngu þurft að reykræsta staðinn. Útkallið barst um klukkan 16.20 að sögn varðstjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert