Verkföllin lögleg

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, ræddi við blaðamenn þegar niðurstaðan …
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, ræddi við blaðamenn þegar niðurstaðan lá fyrir í Félagsdómi. mbl.is/Árni Sæberg

Ótímabundnar vinnustöðvanir félagsfólks Eflingar á sjö hótelum Íslandshótela hafa verið dæmdar löglegar.

Kveðinn var upp dómur í Félagsdómi, rétt í þessu.

Vinnustöðvunin á að hefjast á morgun, þriðjudag, að hádegi.

Fyrr í dag kvað Héraðsdómur Reykjavíkur upp úrskurð þess efnis að Efling skyldi afhenda ríkissáttasemjara kjörskrár sínar svo að framkvæma mætti atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu sem lögð hefur verið fram í deilu félagsins við Samtök atvinnulífsins.

Fréttin verður uppfærð.

Daníel Isebarn, lögmaður Eflingar, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Daníel Isebarn, lögmaður Eflingar, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert