Bílstjórar og hótelstarfsmenn í verkfall

Félagsmenn hafa samþykkt verkfall.
Félagsmenn hafa samþykkt verkfall. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bílstjórar og hótelstarfsmenn sem eru félagar í Eflingu hafa samþykkt að fara í ótímabundið verkfall frá og með miðvikudeginum 15. febrúar.

Þetta varð ljóst eftir að atkvæðagreiðslu um næstu lotu verkfalla Eflingar lauk klukkan sex í kvöld.

Meðal bílstjóra hjá Samskipum, Olíudreifingu og Skeljungi greiddu 57 félagar atkvæði eða 77% af þeim 74 Eflingarfélögum sem voru á kjörskrá. 48 greiddu atkvæði með, 7 á móti og 2 tóku ekki afstöðu. Verkfallsboðun var því samþykkt með rúmlega 84% atkvæða.

82% hótelstarfsmanna hlynntir en kjörsókn 52%

Á Edition hótelinu og hjá Berjaya hótelkeðjunni voru 487 á kjörskrá. Þar af greiddu 255 atkvæði eða rúm 52%. 209 samþykktu, 40 höfnuðu og 6 tóku ekki afstöðu. Verkfallsboðun er því samþykkt með rétt tæplega 82% atkvæða.

Atkvæðagreiðslurnar voru auglýstar 31. janúar eftir að samninganefnd samþykkti þær á fundi sínum.

Verkfallið nær til hundraða Eflingarfélaga. 80% voru hlynnt verkfallinu, sem boðað er til vegna árangursleysis í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert