Krúttkarfa handa nýfæddum Hafnfirðingum

Eitt af krúttunum 347 sem fæddust í Hafnarfirði á árinu …
Eitt af krúttunum 347 sem fæddust í Hafnarfirði á árinu 2022. Rakel Dís Steinsdóttir sem fæddist í upphafi árs 2022. Ljósmynd/Hafnarfjarðarbær

Frá og með 1. janúar 2022 hafa allir nýfæddir Hafnfirðingar fengið heimsendar hamingjuóskir og kort frá heimabænum um að þeirra bíði táknræn gjöf, svokölluð krúttkarfa, á barnadeildinni á Bókasafni Hafnarfjarðar.

Fram kemur í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ að 347 kort hafi verið send út og stór hluti foreldra sótt gjöfina.

„Gjöfin er liður í því að efla Hafnarfjörð enn frekar sem fjölskylduvænt samfélag með fallegri gjöf og upplýsingum um þá þjónustu sem fjölskyldunni allri stendur til boða innan bæjarmarkanna,“ segir í tilkynningu frá bænum.

Þá segir, að karfan innihaldi fatnað fyrir barnið, krúttbangsa og tvær bækur, þar sem önnur sé hugsuð fyrir foreldrana og hin til lestrar fyrir barnið.

„Um er að ræða heilgalla, húfu, sokka og smekk sem ber áletrunina Halló Hafnarfjörður. Ákvörðun um fatnað byggði á notagildi, kynhlutleysi og umhverfissjónarmiðum og er endurskoðuð í lok árs um leið í takti við tækifæri og tíðaranda,“ segir í tilkynningu.

Þá segir, að Geitungarnir, nýsköpunar- og starfsþjálfun fyrir fólk með fötlun, spili stórt hlutverk í framkvæmd krúttkörfunnar.

„Geitungarnir taka á móti innihaldi gjafar, sjá um pökkun í gjafakassa og afhendingu á gjöfunum til bókasafnsins þar sem starfsfólk Bókasafnsins tekur við og annast afhendinguna til foreldra.“

Nokkrar starfsstöðvar Hafnarfjarðarbæjar koma að framkvæmd krúttkörfunnar. Þar spila Geitungarnir …
Nokkrar starfsstöðvar Hafnarfjarðarbæjar koma að framkvæmd krúttkörfunnar. Þar spila Geitungarnir stærsta hlutverkið. Hér með fulltrúa frá þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar og bókasafni. Ljósmynd/Hafnarfjarðarbær
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert