Smáhýsið var mannlaust

Slökkviliðsmenn að störfum úti á Granda í morgun.
Slökkviliðsmenn að störfum úti á Granda í morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Enginn var staddur inni í smáhýsinu á Granda þar sem eldur kviknaði í morgun. Ekki er vitað um upptök eldsins.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var tjónið mikið en slökkvistarfi lauk um hálftíuleytið í morgun.

Slökkviliðið fór í kjölfarið í Breiðholtið þar sem eldur kviknaði í íbúð við Írabakka. Þar hafði pottur gleymst á eldavél. Eldurinn var ekki mikill að sögn varðstjórans en reykur aftur á móti umtalsverður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert