Lokuðu á verkfallsverði eftir hótanir

Lögreglubifreiðar við Fosshótel nú síðdegis.
Lögreglubifreiðar við Fosshótel nú síðdegis. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Forsvarsmenn Íslandshótela tóku ákvörðun um að loka dyrum sínum fyrir verkfallsvörðum sem sagðir eru hafa hótað starfsmönnum hótelsins sem ekki tilheyra stéttarfélaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandshótelum. 

Kalla þurfti til lögreglu að hóteli við Bríetartún vegna málsins og eru þar nú þrír lögreglubílar. 

„Forsvarsmenn Íslandshótela tóku þá ákvörðun nú eftir hádegi í dag að hleypa verkfallsvörðum Eflingar ekki frekar inn á hótel sín, eftir að verkfallsverðir tóku að hóta starfsmönnum annarra stéttarfélaga sem sannarlega eru ekki í verkföllum, sem og yfirmönnum, aðgerðum.

 Íslandshótel hafa sýnt kröfum Eflingar um verkfallsvörn skilning, jafnvel þó lög kveði ekki á um slíkt, og samþykktu að tveir aðilar frá félaginu gætu sinnt verki sínu og fengju aðgang til eftirlits. Efling svaraði til með því að krefjast þess að stór hópur Eflingarfélaga ættu að fá fullan aðgang að hótelunum, en slíku var hafnað með hliðsjón af því að gestir hótelanna ættu skilið ró og næði, jafnvel þó verkfall væri í gangi,“ segir í tilkynningu. 

Hótað starfsmönnum annarra stéttarfélaga 

„Verkfallsverðir Eflingar, sem mættu á hótel Íslandshótela eftir hádegi í dag, hófu svo að hóta starfsmönnum annarra stéttarfélaga sem voru við störf, sem og yfirmönnum sem löglega voru að sinna sinni vinnu, aðgerðum ef þeir leggðu ekki niður störf. Rétt er að ítreka og undistrika að starfsmenn annarra stéttarfélaga eru sannarlega ekki í verkfalli og voru með engu móti að ganga í störf Eflingarfólks. Efling hefur með þessu farið langt yfir eðlileg mörk og í ljósi aðgerðanna hafa forsvarsmenn Íslandshótela nú ákveðið að taka fyrir frekari heimsóknir fulltrúa Eflingar. 

Sú ákvörðun verður að sjálfsögðu endurskoðuð ef breyting verður á afstöðu Eflingar um eðlilega og sanngjarna verkfallsvörslu af þeirra hálfu og munu þá, sem fyrr, tveir fulltrúar félagsins fá aðgang að hótelunum,“ segir ennfremur í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert