Rannsókn lokið og atburðarásin reifuð

Frá Blönduósi eftir skotárásina.
Frá Blönduósi eftir skotárásina. mbl.is/Hákon

Rannsókn lögreglustjórans á Norðurlandi eystra á skotárásinni á Blönduósi í ágúst er lokið.

Frá þessu greinir embættið í tilkynningu, þar sem reifuð er atburðarásin nóttina sem árásin átti sér stað.

Segir þar að rannsóknin hafi leitt í ljós að árásarmaðurinn hafi farið inn um ólæstar dyr á heimili árásarþola á Blönduósi og gengið um vopnaður afsagaðri haglabyssu, með sjö haglaskot meðferðis.

Lést samstundis

„Hann sá að gestir voru á heimilinu, fór út úr húsinu og hélt húsráðandi á eftir honum. Utandyra kom til orðaskipta og átaka sem enduðu með því að árásarmaðurinn skaut húsráðanda í kvið og særði alvarlega.

Árásarmaðurinn fór þá aftur inn í húsið og skaut eiginkonu húsráðanda í höfuð þar sem hún stóð í stofu og lést hún samstundis,“ segir í tilkynningunni.

Rannsóknin hafi einnig leitt í ljós að húsráðandi náði tökum á árásarmanninum þar sem hann var að hlaða vopnið inni í húsinu.

Íbúar Blönduóss streymdu til kirkju í kjölfar árásarinnar. Fáninn við …
Íbúar Blönduóss streymdu til kirkju í kjölfar árásarinnar. Fáninn við kirkjuna var einn fjölmargra sem dregnir voru í hálfa stöng eftir að tíðindi morgunsins tóku að berast um bæinn. mbl.is/Hákon

Á vettvangi 26 mínútum frá aðstoðarbeiðni

„Sonur húsráðanda kom til aðstoðar og náði byssunni af árásarmanninum. Kom til mikilla átaka á milli sonarins og árásarmannsins en í ljós kom að árásarmaðurinn var með veiðihníf í vasa. Átökin enduðu á þann veg að árásarmaðurinn lét lífið. Réttarkrufning hefur leitt í ljós að dánarorsök var köfnun vegna þrýstings á háls og brjóst.

Staðreynt hefur verið að sonurinn hringdi fyrsta símtal til neyðarlínu og óskaði eftir aðstoð lögreglu vegna byssumanns inni í húsinu kl. 05.27. Lögregla á bakvakt í umdæminu var ræst út sjö og hálfri mínútu síðar. Lögregla var komin á vettvang kl. 05.53 eða 26 mínútum frá fyrstu aðstoðarbeiðni,“ segir í tilkynningunni.

Bæjarbúar komu saman til að sýna samhug og tendruðu kerti …
Bæjarbúar komu saman til að sýna samhug og tendruðu kerti á íþróttavellinum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ekki eitt ákveðið atvik

„Rannsókn hefur ekki leitt í ljós að eitthvað eitt ákveðið atvik hafi orðið til þess að árásarmaðurinn mætti vopnaður á heimili árásarþola. Hann var einn að verki, allsgáður og hafði átt vinsamleg og virk samskipti við árásarþola fyrir árásina.

Tilkynnt var um ferðir árásarmannsins við heimili árásarþola og nágrenni þann 27.07.2022 þar sem hann hafði verið með haglabyssu í fórum sínum. Árásarmaðurinn afhenti lögreglu þau skotvopn sem voru skráð á hann og leitaði aðstoðar heilbrigðiskerfis. Rannsókn hefur leitt í ljós að hann var kominn aftur á Blönduós 12.08.2022.

Við rannsókn á skotárásinni kom í ljós að árásarmaðurinn hafði tvisvar sinnum verið í garði við hús árásarþola í júlí og tekið upp myndbönd inn um glugga á húsinu á síma sinn.“

Byssa ófundin

Rannsókn á skotvopninu hafi enn fremur leitt í ljós að haglabyssan var skráð í eigu fyrirtækis sem seldi skotvopn og varð gjaldþrota árið 2008.

„Þrjár haglabyssur voru enn skráðar á fyrirtækið; byssan sem árásarmaðurinn notaði, byssa sem var í fórum óviðkomandi einstaklings og þriðja byssan Maveric M-88-haglabyssa sem er ófundin.“

Tekið er fram að málið hafi verið afhent embætti héraðssaksóknara til ákvörðunar í dag. Kveðst embættið ekki munu veita frekari upplýsingar um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert