Bandaríkjamenn vildu ekki missa Íslendingana heim

Ómissandi teymi.
Ómissandi teymi. Ljósmynd/Landsbjörg

Tvær stórar rústabjörgunarsveitir Bandaríkjamanna hafa óskað eftir áframhaldandi viðveru íslenska björgunarhópsins á skjálftasvæðununum í Tyrklandi.

Þær breytingar urðu á starfi Íslendinganna í dag að ákveðið var að starfsstöð björgunarhópsins, sem hefur verið í Antakya, yrði flutt og sett upp í búðum Bandaríkjamanna í Adiyaman. Óskað var eftir því að Íslendingar myndu fylgja með til að tryggja áfram samfellu í störfum alþjóðlegra björgunarsveita. 

Farið var að líða að lokum starfa Íslendinga á svæðinu og ráðstafanir um heimferð gerðar þegar þessi ósk kom frá bandaríska hópnum, að því er fram kemur í tilkynningu.

Starfsstöðin.
Starfsstöðin. Ljósmynd/Landsbjörg

Fjórir aðgerðastjórnendur hópsins voru því sóttir á þyrlu af bandaríska hópnum og flogið með þá til Adiyaman þar sem þeir munu vinna og dvelja í þeirra búðum.

Hinn hluti hópsins lagði af stað seinni partinn í dag til Adana-flugvallar, þar sem hann flýgur með svissneskum björgunarhóp til Sviss á morgun, mánudag. Þau gista þar eina nótt og áætluð heimkoma þeirra er á þriðjudaginn.

Úr þyrlu Bandaríkjamanna.
Úr þyrlu Bandaríkjamanna. Ljósmynd/Landsbjörg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert