Ömurlegt að standa í svona eftir á fimmta áratug í lögreglunni

Málið hefur verið í gangi á þriðja ár og snýst …
Málið hefur verið í gangi á þriðja ár og snýst um ákvörðun núverandi ríkislögreglustjóra sem vildi snúa við ákvörðun forvera síns. mbl.is/Árni Sæberg

Fyrrverandi yfirlögregluþjónar hjá embætti ríkislögreglustjóra sem höfðu betur í Landsrétti í dag gegn fyrrverandi vinnuveitanda sínum segjast fagna niðurstöðunni. Málaferlin hafa tekið á þriðja ár, en þeir fjórir sem höfðuðu málin hafa nú allir látið af störfum hjá embættinu.

Óskar Bjartmarz, einn af yfirlögregluþjónunum, sagðist mjög ánægður með niðurstöðuna þegar mbl.is náði stuttu tali af honum fyrir utan dómsalinn, en sagðist ekki vilja tjá sig nánar fyrr en hann hefði lesið dóminn allan.

Óskar Bjartmarz, fyrrverandi yfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra.
Óskar Bjartmarz, fyrrverandi yfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra. mbl.is/Árni Sæberg

Ásgeir Karlsson sagðist einnig ánægður með niðurstöðuna. „Það er ömurlegt að standa í svona málaferlum eftir á fimmta tug ára í lögreglunni,“ bætti hann við, en eins og Óskar vildi hann kynna sér niðurstöðuna nánar áður en hann tjáði sig frekar.

Fjórmenningarnir hafa eftir að málið kom upp allir látið af störfum sökum aldurs, en það snerist um launasamkomulag sem Haraldur Johannessen, fyrrverandi ríkislögreglustjóri, gerði við þá og aðra yfirmenn innan lögreglunnar árið 2019.

Fjármálaráðherra hefur sagt að samkomulagið hafi kostað ríkissjóð 360 milljónir, en í því fólst að að fimm­tíu fast­ar yf­ir­vinnu­stund­ir færðust inn í dag­vinnu­laun. Þannig urðu til mun meiri líf­eyr­is­rétt­indi en ella og laun lög­reglu­manna hjá embætti rík­is­lög­reglu­stjóra hærri en laun flestra lög­reglu­stjóra lands­ins. 

Þegar Sigríður Björk Guðjónsdóttir tók við embætti ríkislögreglustjóra árið 2020 boðaði hún afturköllun á þessu samkomulagi og taldi embættið ekki bundið af því. Í kjölfarið höfðuðu fjórmenningarnir fyrrnefnd mál.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert