Stöðva starfsemi ungmennabúða vegna myglu

Ungmennabúðir UMFÍ á Laugarvatni.
Ungmennabúðir UMFÍ á Laugarvatni. Ljósmynd/UMFÍ

Rakaskemmdir og jákvæðar niðurstöður varðandi myglu hafa greinst í húsnæði Ungmennabúða UMFÍ á Laugarvatni og hefur verið ákveðið að stöðva þar alla starfsemi á meðan unnið verður að úrbótum.

Í tilkynningu segir að ekki liggi fyrir hversu langan tíma starfsemin muni liggja niðri. 

Næstu skref félagsins verða að gera framkvæmdaráætlun og mun hún leiða í ljós hversu lengi starfsemin liggi niðri. 

Haft er eftir Sigurði Guðmundssyni, forstöðumanni skóla- og ungmennabúða UMFÍ, að ömurlegt sé að þurfa að grípa til þessara aðgerða og ljóst að einhverjir hópar grunnskólabarna sem áttu pantaða dvöl í búðunum þurfi að sitja heima.

Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður skóla- og ungmennabúða UMFÍ.
Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður skóla- og ungmennabúða UMFÍ. Ljósmynd/UMFÍ

„Okkar fyrsta hugsun er að huga að öryggi og heilsu starfsfólks búðanna sem og barnanna og kennaranna sem koma í ungmennabúðirnar. Þau eru alltaf í fyrsta sæti hjá okkur. Við vitum að börnin og foreldrar þeirra og forráðafólk hafa safnað fyrir dvölinni á Laugarvatni. En á meðan verið er að meta ástand hússins og næstu skref þá viljum við loka búðunum. Við höfum farið yfir heildarúttektina með forsvarsfólki Bláskógabyggðar, fundað með stjórnendum og starfsfólki UMFÍ og haft samband við þá grunnskóla sem eiga pantaða dvöl á Laugarvatni til að upplýsa um þessa stöðu,“ er haft eftir Sigurði. 

Óþéttir gluggar

Húsnæðið UMFÍ er í eigu Bláskógabyggðar og sér UMFÍ um reksturinn. Húsnæðið var skoðað í framhaldi af ábendingum. Skoðunaraðili rakamældi það og tók sýni á nokkrum stöðum sem send voru til rannsóknar í Danmörku.

Þá segir að niðurstöðurnar voru á þann veg að það þurfi að bregðast við stöðunni. 

Raki mældist í steyptum útveggjum og nokkuð var um skemmdir sem m.a. má rekja til óþéttra glugga. Myglumyndun hefur líka greinst í húsinu.

„Allir sem málið snerta voru sammála um að bregðast þurfi við og grípa til aðgerða til að laga húsnæðið,“ segir í tilkynningunni. 

UMFÍ hefur starfrækt Ungmennabúðir frá árinu 2005 en frá árinu 2019 á Laugarvatni. Í búðirnar koma nemendur úr 9. bekk grunnskóla af öllu landinu með kennurum og umsjónarfólki og dvelja þau þar fimm daga í senn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert