Vill hraða orkuskiptum í flugi

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur skipað starfshóp sem er falið að skoða og leggja fram tillögur að því hvaða leiðir séu færar til að hraða orkuskiptum í flugi, með notkun endurnýjanlegs eldsneytis fyrir millilandaflug.

Starfshópurinn á að taka mið af stefnu stjórnvalda, sem og aðgerðaáætlunum um orkuskipti og í loftslagsmálum, að því er segir í tilkynningu.

Guðrún Hafsteinsdóttir.
Guðrún Hafsteinsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er formaður hópsins og á hann að skila af sér tillögu til ráðherra fyrir 1. júlí næstkomandi.

Við vinnu sína á starfshópurinn m.a. að skoða fýsileika framleiðslu rafeldsneytis hér á landi, regluverk ESB um flugvélaeldsneyti (ReFuel) og tengdri löggjöf um ETS kerfið. Þá á hópurinn að skoða endurnýjanlega orkugjafa (REDII) og áhrif þeirra á eftirspurn eftir endurnýjanlegu eldsneyti.

„Ísland er í kjörstöðu til að vinna að framgangi orkuskipta í flugi eins og á öðrum sviðum. Mikilvægt er að vanda vel til verka og skoða þær leiðir í uppbyggingu rafeldsneytisframleiðslu og innleiðingu regluverks sem eru mest hagfelldar okkar hagsmunum. Við þekkjum markmiðin og þurfum aðkomu allra geira í orkuskiptunum framundan,“ segir Guðlaugur Þór í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert