ASÍ stefnir SA vegna verkbanns

Kristján Þórður Snæbjarnarson er forseti ASÍ.
Kristján Þórður Snæbjarnarson er forseti ASÍ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hefur ákveðið að stefna Samtökum atvinnulífsins (SA) fyrir Félagsdómi til þess að fá boðað verkbann gegn félagsfólki Eflingar ógilt.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, staðfestir í samtali við mbl.is að SA hafi borist stefna frá ASÍ í gær. Halldór vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið.

Þingfest á mánudaginn

Í tilkynningu Eflingar kemur fram að ASÍ telji að ákvörðun um verkbann sé ógild, meðal annars sökum þess að stjórn SA sé óheimilt að taka ákvörðun um verkbann og vegna þess að ójafnt atkvæðavægi félagsmanna SA í kosningunni um verkbannið eigi sér ekki lagastoð.

Einnig segir að verkbannsboðun sé talin ólögleg að mati ASÍ vegna þess að allir félagsmenn SA voru á kjörskrá burtséð frá því hvort þeir starfi á félagssvæði Eflingar eða ekki.

Þá séu einnig tilteknir formgallar á verkfallsboðun SA taldir gera hana ólöglega.

Málið verður þingfest á mánudaginn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert