Ekki grundvöllur fyrir samningaviðræðum

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fundur tuttugu lífeyrissjóða, stærstu eigenda skuldabréfa ÍL-sjóðs, telur að óbreyttu ekki grundvöll fyrir samningaviðræðum við fjármálaráðuneytið um uppgjör skuldbindinga sjóðsins.

Fram kemur í tilkynningu að fulltrúar ráðuneytisins hafi ekki komið til móts við kröfur lífeyrissjóðanna um fullar efndir af hálfu íslenska ríkisins í umleitunum þess um mögulegt uppgjör.

„Íslenska ríkið ber ótakmarkaða ábyrgð á öllum skuldbindingum ÍL-sjóðs. Áætlun fjármálaráðherra um slitameðferð og uppgjör á skuldbindingum sjóðsins án tillits til vaxtagreiðslna í framtíðinni felur í sér skerðingu eignarréttinda sem brýtur í bága við ákvæði stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu. Um það liggja fyrir ítarlega rökstudd lögfræðiálit LOGOS lögmannsþjónustu og Róberts Spanó, fyrrverandi forseta Mannréttindadómstóls Evrópu. Hugmyndir fjármálaráðherra um uppgjör sem ekki felur í sér fullar efndir af hálfu íslenska ríkisins eru því óásættanlegar,“ segir í tilkynningunni.

Tugmilljarða króna tjón

Þar kemur einnig fram að svör fjármálaráðherra á Alþingi um málið í síðustu viku komi á óvart hvað varðar ummæli um að ekki sé óskað eftir samkomulagi um skerðingu eigna.

„Boðaðar ráðstafanir í tengslum við slit ÍL-sjóðs, sem miða að því að lækka verulega fjárhagslegar skuldbindingar íslenska ríkisins, með lagasetningu náist ekki samningar, leiða að óbreyttu til tugmilljarða króna tjóns lífeyrissjóðanna og þar með almennings í landinu í formi tapaðra lífeyrisréttinda. Við blasir að látið yrði reyna á allar slíkar aðgerðir fyrir dómstólum.“

Fram kemur að lífeyrissjóðirnir hafi ríkum lögbundnum skyldum að gegna gagnvart sínum umbjóðendum, sjóðfélögum. Þessar skyldur útiloki gerð samkomulags af því tagi sem felist í uppleggi fjármálaráðuneytisins.

„Á meðan ekki er komið til móts við grundvallarkröfur lífeyrissjóðanna um fullar efndir þjóna samningaviðræður við fjármálaráðuneytið því ekki tilgangi. Um það er full samstaða meðal sjóðanna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert