Dómur í máli ASÍ gegn SA í dag

Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti ASÍ og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóra …
Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti ASÍ og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóra SA. Samsett mynd

Seinni partinn í dag mun Félagsdómur kveða upp dóm í máli sem Alþýðusamband Íslands höfðaði gegn Samtökum atvinnulífsins til að fá verkbann SA gegn félagsmönnum Eflingar dæmt ógilt.

Rúmlega vika er síðan ASÍ tilkynnti um stefnuna gegn SA, en síðan þá hefur ýmislegt gerst í viðræðum SA og Eflingar. Lagði ríkissáttasemjari fram nýja miðlunartillögu á miðvikudaginn og var þá öllum vinnustöðvunum, bæði verkföllum og verkbönnum, frestað meðan atkvæðagreiðsla um miðlunartillöguna fer fram. Niðurstaða hennar mun liggja fyrir um hádegi á miðvikudaginn.

Þrátt fyrir miðlunartillöguna hélt ASÍ stefnu sinni til streitu og mun Félagsdómur sem fyrr segir kveða dóm sinn upp í dag. ASÍ taldi að ákvörðun um verkbann væri ógild, meðal annars sökum þess að stjórn SA hafi verið óheimilt að taka ákvörðun um verkbann og vegna þess að ójafnt at­kvæðavægi fé­lags­manna SA í kosn­ing­unni um verk­bannið eigi sér ekki laga­stoð.

Einnig taldi ASÍ að verk­banns­boðun sé tal­in ólög­leg vegna þess að all­ir fé­lags­menn SA voru á kjör­skrá burt­séð frá því hvort þeir starfi á fé­lags­svæði Efl­ing­ar eða ekki. Þá tilgreindi ASÍ einnig formgalla á verkbannsboðuninni sem gerðu hana ólöglega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert