Páll hafi verið notaður og afvegaleiddur

Daði Björnsson og Páll Jónsson.
Daði Björnsson og Páll Jónsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Verjandi timbursalans í stóra kókaínmálinu sagði hann hafa verið afvegaleiddan og notaðan til að smygla tæplega 100 kílóum af kókaíni til landsins og krafðist því sýknu að hluta til fyrir skjólstæðing sinn.

Málflutningur fer fram fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og tók Unnsteinn Örn Elvarsson, verjandi Páls, fyrstur til máls á eftir saksóknara.

Saksóknari legg­ur til að sakborningarnir fjórir, Páll Jóns­son, Daði Björns­son, Jó­hann­es Páll Durr og Birg­ir Hall­dórs­son hljóti há­marks­refs­ingu, það er að segja tólf ára fangelsisvist.

Ekki meðvitaður um umfangið

Unnsteinn Örn Elvarsson, verjandi Páls, sagði að Páll hafi ekki verið meðvitaðir um umfang sendingarinnar og vísaði til þess að hann ætti engan sakaferil að baki. Páll hefur þó játað sök að hluta til.

Unnsteinn Örn Elvarsson og Arnar Kormákur Friðriksson ásamt Páli.
Unnsteinn Örn Elvarsson og Arnar Kormákur Friðriksson ásamt Páli. mbl.is/Hákon

Páll er á sjö­tugs­aldri og átti fyr­ir­tækið, Hús og Harðviður, sem flutti inn timbrið sem fíkni­efn­in voru fal­in í. 

Páll lýsti því fyr­ir dómi í janúar að „and­legt þrot“ hefði leitt til þess að hann samþykkti að flytja inn kókaínið.

„Ég lét til leiðast. Það voru mín mis­tök,“ sagði Páll og greindi frá því að árið 2021 hafi hann misst bæði son sinn og tengda­móður. Þá hafi stjúp­son­ur hans glímt við al­var­leg veik­indi.

Fyrir dómi sagði Páll að hann hafi ekki vitað um umfang sendingarinnar og að hann hafi talið upphaflega væri um sex kíló væri að ræða.

Unnsteinn vísaði til skýrslutöku lögreglu og sagði að Páll hafi fengið áfall er hann fékk að vita að um tæplega 100 kíló væri að ræða.

Þá nefndi Unnsteinn meðal annars að upphæðirnar sem mennirnir áttu að fá greitt fyrir verkefnið samsvari ekki götuvirðis kókaíns, upphæðin hefði átt að vera umtalsvert meiri ef markar umfjöllun fjölmiðla um götuvirð, en Páll greindi frá því í skýrslutöku lögreglu að hann hefði átt að fá 30 millj­ón­ir fyr­ir sinn þátt. Í seinni skýrslu­tök­um dró hann það hins veg­ar til baka. 

Samanburður við saltdreifaramálið ósanngjarn

Saksóknari nefndi í sínum málflutningi að það væri dóms­ins að meta refs­ingu en vísaði til fyrri dóma, þar á meðal 12 ára fang­els­is­dóma í saldreifara­mál­inu.

Unnsteinn sagði ósanngjarnt að bera þessi mál saman, meðal annars af því að sakborningarnir í því máli áttu langan sakaferil að baki ólíkt Páli.

Unnsteinn sagði að rannsókn lögreglu væri vörulega ábótavant og að lítill áhugi væri að ná höfuðpaurum málsins. Einnig gagnrýndi hann sýnatöku hollensku lögreglunar á fíkniefnunum.

Hol­lenska lög­regl­an hald­lagði 99,25 kíló­ af kókaín og var ein­ung­is 10% af efn­inu tekið til skoðunar. Er hollenska lögreglan bar vitni fyrir dómi sagði hún að það væri regla samkvæmt evrópskum stöðlum.

Unnsteinn sagði að málsmeðferðin og rannsókn málsins færi fram á Íslandi og því ættu íslenskar reglur að gilda.

Unnsteinn nefndi að lokum að dómur skildi líta til þess að Páll væri á eftirlaunaaldri og ætti við veikindi að stríða, bæði líkamleg og andleg. Þá glími hann líklega við byrjunarstig hvítblæðis sem hann hefur ekki fengið neina aðstoð við.

Unnsteinn nefndi einnig að taka ætti tillit til þess að Páll sé fjölskyldumaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert