Ritstjórn Vísis boðuð fyrir dóm

Margrét Björk Jónsdóttir, fréttamaður Vísis, Erla Björg Gunnarsdóttir, ritstjóri fréttastofu …
Margrét Björk Jónsdóttir, fréttamaður Vísis, Erla Björg Gunnarsdóttir, ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar, og Kolbeinn Tumi Daðason, fréttastjóri Vísis, mættu í dómsal ásamt Reimari Péturssyni lögmanni þeirra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ritstjórn Vísis var boðuð í dómssal í morgun og gefinn kostur á að útskýra birtingu fréttar í stóra kókaínmálinu.

Aðalmeðferð í málinu hófst 19. janúar og greindi dómari þá frá því að fjöl­miðlum væri óheim­ilt að greina frá skýrslu­tök­un­um fyrr en þeim er öll­um lokið í mál­inu. Þeim lauk tæplega sjö vikum síðar, 6. mars.

Vísir virti hins vegar bann dómara að vettugi þar sem miðillinn taldi um oftúlkun á lögum að ræða og birti frétt upp úr vitnaleiðslum sakborninganna fjögurra í málinu 3. mars.

Dóm­ari vitnaði í því sam­hengi í síðustu máls­grein 10 gr. 1. þátt­ar laga um meðferð saka­mála, þar sem seg­ir:

Nú tel­ur dóm­ari að nægi­legt sé til þess að tryggja þá hags­muni sem búa að baki 1. mgr. að leggja bann við op­in­berri frá­sögn af þing­haldi skv. 2. mgr. 11. gr. og skal hann þá grípa til þess úrræðis í stað þess að loka þing­haldi.

Sýknu krafist

Reimar Pétursson, verjandi Vísis, sagðist í dómssal ekki hafa fengið gögn málsins en rakti þó ástæður ritstjórnarinnar og vísaði í lög um tjáningarfrelsi og lagameðferð sakamála. Þá gerði hann kröfu um málsmeðferð vegna málsins. Reimar sagði að sýknu yrði krafist.

Hann sagði umbjóðendur sína vera í óþægilegri stöðu vegna tengsla við stóra kókaínmálið.

Dómari sagði að ekkert hefði verið ákveðið um sektir eða aðra refsingu og að málið yrði skoðað. Þá sagði hann að ef dómurinn myndi halda þessu máli áfram yrði gert úr því sérstakt mál. Saksóknari sagði að skoða þyrfti hvort lög hefðu verið brotin.

Í dag fer fram mál­flutn­ingur sak­sókn­ara og verj­anda í mál­inu og þá má bú­ast við dóms­upp­kvaðningu um fjór­um vik­um síðar.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert