Enginn varð fyrir skoti en hvellurinn töluverður

Skemmtistaðurinn The Dubliner.
Skemmtistaðurinn The Dubliner. mbl.is/Kristinn Magnússon

Gestur skemmtistaðarins The Dubliner sem var með skrámu á höfði eftir að karlmaður hleypti þar af skoti í gærkvöldi varð ekki fyrir skoti. Áverkar hans komu til með öðrum hætti.

Þetta segir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar, sem hefur ekki nánari upplýsingar um hvernig áverkarnir komu til. Í tilkynningu frá lögreglunni í gærkvöldi kom fram að tveir gest­ir staðar­ins hefðu fengið aðhlynn­ingu. Annar var með skrámu á höfði og hinn hafði áhyggj­ur af heyrn sinni. 

Spurður hvort gesturinn sem hafði áhyggjur af heyrn sinni hefði staðið við hliðina á skotmanninum svarar Grímur því neitandi. „Hvellurinn hefur verið töluverður inni á staðnum en það stóð enginn mjög nærri skotmanninum þegar hann hleypti af,“ segir hann.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn að manninum en fyrr í morgun sagði Grímur við mbl.is að lögreglan væri að reyna að finna út hver hann er. 

Lögreglan fékk tilkynningu um málið rétt upp úr klukk­an sjö í gærkvöldi. Byssuskotið hafnaði á vegg við bar­inn og flúði skot­maður­inn vett­vang í kjöl­farið. Stuttu seinna fundu lög­reglu­menn skot­vopn nærri vett­vangi. Spurður hvort um haglabyssu sé að ræða eins og fullyrt hefur verið í fjölmiðlum vill Grímur ekkert tjá sig um það. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert