Fjöldi fólks í vanda á Austurlandi

Frá aðgerðum björgunarsveita á Fagradal í dag.
Frá aðgerðum björgunarsveita á Fagradal í dag. Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarsveitir á Austurlandi hafa verið við störf í dag á fjallvegum austanlands og aðstoðað fjölda manns sem komust ekki leiðar sinnar sökum veðurs.

Veður var slæmt og skyggni lítið sem ekkert á köflum á Fagradal. Björgunarsveitir sóttu fólk úr að minnsta kosti fimm bílum en töluverðir skaflar höfðu myndast á leiðinni.

Flestir voru ferðamenn en einhverjir heimamenn sem voru að fara á milli byggðarlaga vegna vinnu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg.

Á Möðrudal varð árekstur tveggja bíla. Ekki urðu slys á fólki en bílarnir voru ekki ökuhæfir og fékk fólk far til byggða.

Ljósmynd/Landsbjörg
Ljósmynd/Landsbjörg
Ljósmynd/Landsbjörg
Ljósmynd/Landsbjörg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert