Lætur af formannsstörfum eftir aðgerð á heila

Karl Ágúst Úlfsson, formaður Rithöfundasambands Íslands.
Karl Ágúst Úlfsson, formaður Rithöfundasambands Íslands. Ljósmynd/Valgarður Gíslason

Karl Ágúst Úlfsson, formaður Rithöfundasambands Íslands, hyggst stíga til baka sem formaður sambandsins í kjölfar aðgerðar þar sem góðkynja æxli var fjarlægt úr heila hans.

Frá þessu greinir hann í tilkynningu á Facebook-hópi Rithöfundasambandsins. Utan formennskustarfsins er Karl Ágúst þekktur leikari og leikstjóri og var einn stofnenda Spaugstofunnar.

Hann segir aðgerðina hafa gengið vel en að líkamleg geta hans og heilastarfsemi séu skert í kjölfarið. Hann kveðst nú þegar hafa endurheimt stóran hluta hreyfigetu sinnar og að heilastarfsemi hans muni með öllum líkindum verða endurheimt að fullu, en að eins og er sé starfsgeta hans til að sinna formannsembættinu ekki fullnægjandi að eigin mati.

Karl Ágúst var kjörinn formaður RSÍ árið 2018 og var á síðasta ári kjörinn til að gegna embættinu áfram til ársins 2024. Margrét Tryggvadóttir varaformaður sambandsins mun gegna skyldum formanns þangað til annað verður ákveðið.

Heilsufarsleg skakkaföll

Hér á eftir fer tilkynning Karls í heild sinni:

Kæru félagar

Á aðalfundi RSÍ á síðasta ári var ég endurkjörinn formaður til tveggja ára. Í ljósi þess reiknaði ég með að gegna því starfi í sex ár samanlagt, eða frá 2018 til 2024. En ekki er framtíð manns alltaf fyrirsjáanleg og nú hefur komið í ljós að svo muni ekki verða. Það eru heilsufarsleg skakkaföll sem valda því.

Fyrir um það bil þremur mánuðum var ég greindur með heilaæxli. Það reyndist vera góðkynja, ég var snarlega skorinn og æxlið fjarlægt. Aðgerðin heppnaðist vel, en ég á þrátt fyrir það langt í land með að stunda þau störf sem ég hafði tekið að mér. Eitt af þeim er formennska RSÍ.

Áhrif skurðaðgerðar á heila manns geta verið mikil og erfið viðureignar. Aðgerðin dró stórlega úr líkamlegri getu minni, en ég hef náð að endurheimta hluta hennar með sjúkraþjálfun. Það er þó einkum og sér í lagi breytt starfsemi heilans sem háir mér og á að öllum líkindum eftir að skila sér til baka á löngu tímabili. Það hefur kveikt hjá mér alvarlegan efa á að ég búi nú um allnokkurt skeið yfir andlegri og vitsmunalegri getu sem mér þykir nauðsynleg til að sinna formennsku sambandsins jafn vel og æskilegt er. Af þeirri ástæðu óska ég eftir að stíga út úr starfi formanns RSÍ. Ég mun sem sagt ekki gegna embættinu fram að aðalfundi ársins 2024. Margrét Tryggvadóttir varaformaður mun gegna skyldum formanns þangað til annað verður ákveðið.

Mér þykir afar vænt um Rithöfundasamband Íslands og hef tekið að mér margvísleg verkefni fyrir það á þeim fjörutíu árum sem liðin eru frá því ég gerðist þar félagi. Ég hef haft mikla ánægju af starfi sem formaður og þykir því býsna sárt að kveðja það fyrr en ég ætlaði. Ég tel það þó rétta ákvörðun og óska eftir að einhver taki við keflinu sem ræður við það betur en ég um þessar mundir. Loks vil ég þakka það traust sem mér hefur verið sýnt og gott samstarf við annað stjórnarfólk, samninganefndir og alla þá sem tekið hafa að sér að þjóna hagsmunum rithöfunda á öllum sviðum.

Bestu kveðjur til ykkar allra,

Karl Ágúst Úlfsson

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert