Byssumaðurinn áfram í haldi

mbl.is/Kristinn Magnússon

Gæsluvarðhald yfir karlmanni um þrítugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur framlengt til miðvikudagsins 22. mars, en maðurinn er grunaður um að hafa hleypt af skoti inni á Dubliners í miðborg Reykjavíkur sl. sunnudagskvöld.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

„Hann var handtekinn daginn eftir og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 17. mars, en varðhaldið hefur nú verið framlengt eins og áður sagði. Rannsókn málsins miðar vel. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert