Verbúðin með níu Eddur

2022 var ár verðbúðarinnar.
2022 var ár verðbúðarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sjónvarpsþættirnir Verbúðin sem Vesturport framleiddi hlaut flestar Eddur, eða samtals níu, þegar verðlaun Íslensku sjónvarps- og kvikmyndaakademíunnar (ÍKSA) voru afhent við hátíðlega athöfn í Háskólabíói fyrr í kvöld. Alls voru veitt verðlaun í 26 flokkum auk heiðursverðlauna sem féllu í skaut Ágúst Guðmundssonar.

Ágúst Guðmundsson tók á móti heiðursverðlaunum.
Ágúst Guðmundsson tók á móti heiðursverðlaunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Verbúðin var meðal annars valin sjónvarpsefni ársins, Mikael Torfason, Björn Hlynur Haraldsson og Gísli Örn Garðarsson voru verðlaunaðir fyrir handrit sitt að þáttunum og Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippusdóttir fyrir leik sinn í aðalhlutverki. Verbúðin var tilnefnd til alls 17 verðlauna.

Dóra Gunnarsdóttir tók á móti verðlaunum fyrir Áramótaskaupið, sem var …
Dóra Gunnarsdóttir tók á móti verðlaunum fyrir Áramótaskaupið, sem var valið besti skemmtiþáttur ársins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kvikmyndirnar Volaða land í leikstjórn Hlyns Pálmasonar og Svar við bréfi Helgu í leikstjórn Ásu Helgu Hjörleifsdóttur hlutu næstflest verðlaun eða tvenn hvor mynd. Volaða land var verðlaunuð fyrir leikstjórn Hlyns og kvikmynda­töku Mariu von Hausswolff. Björn Thors og Anita Briem voru verðlaunuð fyrir bestan leik í aukahlutverki í Svari við bréfi Helgu.

Vinningshafar ársins voru eftirfarandi:

Kvikmynd

Berdreymi

Leikstjórn

Hlynur Pálmason fyrir Volaða land

Handrit

Mikael Torfason, Björn Hlynur ­Haraldsson og Gísli Örn Garðarsson fyrir Verbúðina

Leikari í aðalhlutverki

Gísli Örn Garðarsson fyrir Verbúðina

Leikkona í aðalhlutverki

Nína Dögg Filippusdóttir fyrir Verbúðina

Leikari í aukahlutverki

Björn Thors fyrir Svar við bréfi Helgu

Leikkona í aukahlutverki

Anita Briem fyrir Svar við bréfi Helgu

Leikið sjónvarpsefni

Verbúðin

Heimildarmynd

Velkominn Árni

Stuttmynd

Hreiður

Barna- og unglingaefni

Randalín og Mundi: Dagar í desember

Frétta- eða viðtalsþáttur

Kveikur

Íþróttaefni

Jón Arnór

Mannlífsþáttur

Leitin að upprunanum

Menningarþáttur

Evrópsku kvikmyndaverðlaunin

Skemmtiþáttur

Áramótaskaup 2022

Sjónvarpsmaður

Viktoría Hermannsdóttir

Brellur

Guðjón Jónsson (VFX Supervisor) Monopix, ShortCut, MPC, Union VFX og Filmgate fyrir Against the Ice

Búningar

Margrét Einarsdóttir og Rebekka Jónsdóttir fyrir Verbúðina

Gervi

Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Verbúðina

Tónlist

Herdís Stefánsdóttir og Kjartan Dagur Holm fyrir Verbúðina

Hljóð

Gunnar Árnason fyrir Skjálfta

Klipping

Kristján Loðmfjörð fyrir Verbúðina

Kvikmyndataka

Maria von Hausswolff fyrir Volaða land

Leikmynd

Atli Geir Grétarsson og Ólafur ­Jónasson fyrir Verbúðina

Upptöku- eða útsendingastjóri

Salóme Þorkelsdóttir fyrir ­Söngvakeppnina 2022

Heiðursverðlaun

Ágúst Guðmundsson

Berdreymi var valin besta kvikmyndin.
Berdreymi var valin besta kvikmyndin. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert