Karlar í miklum meirihluta í valnefndum Eddunnar

Í valnefndum fagverðlauna Eddunnar voru fjórar konur og 13 karlar.
Í valnefndum fagverðlauna Eddunnar voru fjórar konur og 13 karlar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Félag kvenna í kvikmyndum (WIFT) lýsir yfir vonbrigðum með kynjahlutfall í valnefndum Edduverðlaunanna. Í heildina voru þar 25 karlmenn og 13 konur. Í valnefndum fyrir hljóð og tónlist, klippingu og kvikmyndatöku og handrit og leikstjórn sat engin kona.

Þetta kemur fram í opnu bréfi frá Leu Ævars, formanni WIFT á Íslandi, til stjórnar Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA) og fagráðs Eddunnar í kjölfar þess að mönnun valnefndanna var gerð opinber í dag.

„Nú er ljóst að jafnrétti kynjanna var á engan hátt haft að leiðarljósi þegar skipað var í þær,“ segir í bréfinu.

Í valnefndum fagverðlauna voru fjórar konur og 13 karlar.

Jafnréttissjónarmið skorti í uppstillingu

„Félag kvenna í kvikmyndum og sjónvarpi á Íslandi lýsir yfir miklum vonbrigðum með það sem virðist vera alger skortur á jafnréttissjónarmiðum þegar kemur að því að stilla upp í valnefndir Eddunnar. Hvernig stendur á því að árið 2023, að undangenginni mikilli vinnu við það að jafna hlut kynja í kvikmyndagerð, sé staðan þessi?“ er spurt í bréfinu.

Þar segir að félagið fari fram á að stjórn ÍKSA taki til gagngerrar endurskoðunar hvernig skipað er í valnefndir og að tryggt verði með þar til gerðum reglum að jafnréttisviðhorf verði höfð að leiðarljósi.

„Vinnubrögð af þessu tagi eru ekki aðeins óboðleg heldur rýra þau trúverðugleika tilnefninga og þar með verðlauna og varpa fyrir vikið skugga á alla Edduhátíðina í ár.

Stjórn WIFT á Íslandi setur fram afdráttarlausa kröfu um að nú verði meitluð í stein ófrávíkjanleg regla ÍKSA um að gætt sé að fjölbreytni og kynjahlutföllum við skipun í valnefndir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert