Óljóst hver játar hvað í fyrsta holli

Fjölmenni er við þingfestingu Bankastræti club málsins.
Fjölmenni er við þingfestingu Bankastræti club málsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sex þeirra manna sem ákærðir eru í Bankastræti Club málinu svokallaða eru búnir að koma fyrir dómara í fjölmennasta dómsmáli sem héraðsdómur hefur tekið fyrir. Þar tóku þeir afstöðu til sakargifta. Búið er að gera hlé á þingfestingunni á meðan beðið er eftir næsta holli sakborninga. 

Fimm mannanna eru ákærðir fyrir alvarlega líkamsárás en einn þeirra er ákærður fyrir tilraun til manndráps. Þrír mannanna sem ákærðir eru fyrir líkamsárás hafa játað verknaðarlýsinguna að hluta. Óljóst er hvað felst í því og mun það ekki koma í ljós hvað mennirnir eru að játa fyrr en greinagerð verður skilað.   

Lögreglan er með allnokkurn viðbúnað í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Lögreglan er með allnokkurn viðbúnað í Héraðsdómi Reykjavíkur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hafnar tilraun til manndráps

Sá sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps játaði einnig verknaðarlýsingu að hluta en neitar heimfærslu refsiábyrgðar eins og henni er lýst í ákæru.

Málið er allsérstakt fyrir þær sakir hve margir sakborningar eru á svæðinu. Lögreglan er með nokkurn viðbúnað og nokkrir lögreglumenn í héraðsdómi. Lögregla gefur þó ekki upp hve margir lögreglumenn eru á svæðinu í heild. 

Sakborningar koma í salinn einn af öðrum.
Sakborningar koma í salinn einn af öðrum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Næsta holl mannanna verður tekið fyrir í framhaldinu. 

Ólíkar sakargiftir

Í ákæru eru ell­efu sak­born­inga sagðir hafa ruðst grímu­klædd­ir inn á Banka­stræti Club og veist þar að þrem­ur mönn­um. Einn hinna ákærðu er sagður hafa stungið menn­ina þrjá með hníf en sá hef­ur verið í gæslu­v­arðhaldi. Er hann ákærður fyr­ir til­raun til mann­dráps.

Hinum tíu er gert að hafa ráðist að þre­menn­ing­un­um með hnefa­högg­um og spörk­um og einn þeirra er sagður hafa notað kylfu í árás­inni.

Fjór­tán til viðbót­ar eru ákærðir fyr­ir hlut­deild í árás­inni með því að hafa ruðst grímu­klædd­ir inn á skemmti­staðinn, verið inn í hús­næðinu á meðan árás­inni stóð og verið þannig ógn­un við menn­ina þrjá. Þannig hafi þeir veitt árás­ar­mönn­un­um liðsinni í verki.

Menn­irn­ir þrír sem ráðist var á krefjast þess að hóp­ur­inn verði dæmd­ur til að greiða þeim sam­tals 15 millj­ón­ir í bæt­ur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert