Ekkert fjarskiptasamband á þekktu snjóflóðasvæði

Björgunarfélag Ísafjarðar brá á það ráð að koma fyrir bíl …
Björgunarfélag Ísafjarðar brá á það ráð að koma fyrir bíl við Dynjanda sem eins konar stjórnstöð á vettvangi. Ljósmynd/Landsbjörg

„Þetta var mjög krefjandi, nokkurra klukkutíma rúntur og skyggnið var nánast ekki neitt,“ segir Teitur Magnússon, varaformaður Björgunarfélags Ísafjarðar.

Björg­un­ar­sveit­ir frá Þing­eyri, Flat­eyri og Ísaf­irði voru kallaðar út til aðstoðar fólki á Dynjandis­heiði en skoll­ið hafði á þreif­andi byl­ur og skyggni var lítið sem ekk­ert.

„Við vorum kölluð út rétt upp úr klukkan hálfníu í gærkvöldi og komum aftur í hús upp úr klukkan fjögur í nótt.“

Hvorki farsíma- né Tetra-samband

Teitur segir nær ekkert fjarskiptasamband á hátt í tíu kílómetra löngum kafla á Dynjandisheiði.

„Það má segja að við séum nánast sambandslausir alveg frá Dynjanda og upp að sýslumörkum sem er líklega hátt í tíu kílómetra spotti.

Þeir sem stjórna aðgerðum sjá ekki hvar við erum og við getum ekki talað við neinn og erum hvorki í farsíma- né Tetra-sambandi en Tetra kerfið á að heita neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi,“ segir Teitur.

„Á þessari leið er til dæmis þekkt snjóflóðasvæði og manni líður ekki vel að fara þarna um og geta ekkert látið vita ef eitthvað kemur upp á,“ segir hann enn fremur.

Hann segir Björgunarfélagið hafa komið fyrir bíl við Dynjanda í gær og nýtt sem eins konar stjórnstöð á vettvangi.

„Við notuðum VHF-kerfi til að kalla á milli bíla og notuðum bílinn við Dynjanda sem millilið á milli bílanna eða eins konar stjórnstöð.“

Strandar á fjármagni

Teitur segir að þrýst hafi verið á úrbætur á réttum stöðum en það strandi allt á einu.

„Við höfum verið í ágætis sambandi við Neyðarlínuna vegna þessa en það eru allir aðilar á sama máli. Þetta er ekki boðlegt ástand en þetta strandar allt á fjármagni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert