Fjórir handteknir eftir tilkynningu um hnífaburð

Lögreglan að störfum í miðbæ Reykjavíkur. Mynd úr safni.
Lögreglan að störfum í miðbæ Reykjavíkur. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjórir hafa verið handteknir eftir að tilkynning barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um að menn væru vopnaðir hnífum fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur.

Fyrst þegar tilkynningin barst um tíuleytið í gærkvöldi brást lögreglan strax við og sendi fjölmennt lið á vettvang en mennirnir voru farnir þegar lögregla kom á staðinn, segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Skömmu síðar var tilkynnt um að manni væri haldið utan við skemmtistað í miðbænum og var talið að málin tengdust. Lögregla sem var við leit vegna fyrra málsins náði mönnunum eftir skamma stund og voru fjórir handteknir á vettvangi vegna málsins.

Þeir höfðu hlaupið undan lögreglu og reynt að losa sig við áberandi fatnað sem fannst einnig við handtökustaðinn.

Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins en rannsókn er á frumstigi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert