„Þetta gengur ekki upp“

Áslaug Arna.
Áslaug Arna. mbl.is/Kristófer Liljar

„Þetta gengur ekki upp, það er bara svoleiðis,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, há­skóla-, iðnaðar og ný­sköp­un­ar­ráðherra,  þegar hún er spurð um ásókn ráðherra í meiri ríkisútgjöld í ótryggu efnahagsástandi heimsins, sem hafi sín áhrif hér á landi. „Það er ekki hægt að verja hér fjármunum í hina ýmsu málaflokka þegar staðan er þannig að hið eina sem við eigum að vera að berjast við er verðbólgan.“

Þetta kemur fram í viðtali Dagmála, streymis Morgunblaðsins sem opið er öllum áskrifendum, og birt er í dag.

Áslaug Arna segir að að því þurfi ríkisstjórnin öll að einbeita sér.

„Það eina sem skiptir máli nú er að ná verðbólgunni niður. Fyrir fólkið í landinu, fyrir lífskjör og til þess að ná einhverjum árangri hér í landinu til lengri tíma,“ segir hún.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert