Beint: Vorfundur Landsnets um orkuskipti

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, flytur ávarp á …
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, flytur ávarp á fundinum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Vorfundur Landsnet, sem ber yfirskriftina Fjúka orkuskiptin á haf út?, hefst í Hörpu klukkan 8.30 í dag.

Fjallað verður um mikilvægi flutningskerfisins í orkuskiptum.

Beint streymi frá fundinum:


„Nýir orkukostir eru mikið í umræðunni og mikið hefur verið rætt um tækifærin sem í því felast en líka hindranir. Hversu vel er flutningskerfi rafmagns í stakk búið til að miðla rafmagni um landið? Hversu mikið af vindorku má nýta og flytja um landið? Erum við klár í orkuskiptin?“ segir í tilkynningu.

„Meðal þess sem mun koma fram á fundinum eru nýjar upplýsingar um hversu mikið af vindorku flutningskerfið getur tekið við og nýtt í átt að orkuskiptunum,“ segir þar einnig.

Dagskráin:

Guðlaugur Þór Þórðarson

Umhverfis-, orku- og umhverfisráðherra

Ávarp

Guðmundur Ingi Ásmundsson

Forstjóri

Fjúka orkuskiptin á haf út?

Gnýr Guðmundsson

Forstöðumaður kerfisþróunar

Við erum tilbúin

Svandís Hlín Karlsdóttir

Framkvæmdastjóri viðskipta- og kerfisþróunar

Grípum tækifærin

Katrín Olga Jóhannesdóttir

Framkvæmdastjóri Elma

Valdefling neytandans og nýrrar tækni

Sigrún Björk Jakobsdóttir

Stjórnarformaður

Fundarstjóri

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert