Slaka á reglum fyrir hælisleitendur

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að senda þingflokkum stjórnarflokkanna drög að frumvarpi. Verði frumvarpið að lögum verður heimilt að veita tímabundnar og skilyrtar undanþágur frá skipulags- og byggingarlöggjöf, og skipulagi vegna breytinga á húsnæði, að því gefnu að það verði notað á vegum opinberra aðila fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Húsnæðið þarf meðal annars einnig að uppfylla uppfylli viðeigandi kröfur til brunavarna, öryggis og hollustuhátta.

Heimild samkvæmt drögum frumvarpsins mun gilda til 1. júní árið 2025 en mikil þörf er fyrirsjáanleg fyrir tímabundin búsetuúrræði handa umsækjendum um alþjóðlega vernd hér á landi.

1.300 manns sótt um vernd á árinu

Á síðasta ári sótti metfjöldi fólks um alþjóðlega vernd hér á landi, ekki síst í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu og frá síðustu áramótum hafa um 1.300 manns sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi.

Vinnumálastofnun þjónustar umsækjendur um alþjóðlega vernd en búsetuúrræði á vegum stofnunarinnar eru nær fullnýtt og gengið hefur erfiðlega að finna hentugt húsnæði til leigu.

Frumvarpið gerir stofnuninni kleift að breyta til að mynda skrifstofuhúsnæði í eigu ríkisins, sem stendur autt, í tímabundið búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Gylfi Þór Þorsteinsson, aðgerðastjóri vegna komu flóttafólks frá Úkraínu, og …
Gylfi Þór Þorsteinsson, aðgerðastjóri vegna komu flóttafólks frá Úkraínu, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, við opnun móttökumiðstöðvar umsækjenda um alþjóðlega vernd á síðasta ári. mbl.is/Árni Sæberg

Liður í samhæfingu aðgerða

Umrætt frumvarp er liður í samhæfingu aðgerða stjórnvalda vegna móttöku flóttafólks. Það var unnið í innviðaráðuneytinu og í samvinnu við bæði félags- og vinnumarkaðsráðuneytið  og forsætisráðuneytið.

Í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands er haft eftir Sigurði Inga Jóhannssyni innviðaráðherra að ríkisstjórninni hafi þótt nauðsynlegt að veita Vinnumálastofnun svigrúm til að útvega húsnæði með skjótum hætti.

„Það er mikilvægt að vanda til verka þegar um er að ræða löggjöf sem dregur tímabundið úr kröfum til húsnæðis sem ætlað er til búsetu. Ætlunin er að stytta ferla til að heimila breytta notkun húsnæðis til búsetu. Gerðar verða viðeigandi kröfur til brunavarna, öryggis og hollustuhátta húsnæðis í samræmi við fyrirhugaða notkun þess sem tímabundið búsetuúrræði,“ er haft eftir innviðaráðherra.

Haft er eftir Guðmundi Inga Guðbrandssyni, félags- og vinnumarkaðsráðherra, að frumvarpinu sé ætlað að bregðast við þeim aðstæðum sem uppi eru á húsnæðismarkaði.

„Þegar Vinnumálastofnun tók í fyrra við þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd voru 700 umsækjendur búsettir í húsnæði á vegum stofnunarinnar. Tæpum níu mánuðum síðar dvelja nú tæplega 1.800 umsækjendur í slíku húsnæði. Nauðsynlegt er því að grípa til þessara tímabundnu aðgerða til að tryggja flóttafólki búsetuúrræði á meðan mál þess eru í vinnslu,“ er haft eftir félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Skipulagsstofnun heimilað að veita undanþágur

Með frumvarpinu getur Skipulagsstofnun, samkvæmt tilkynningunni, með beiðni frá Vinnumálastofnun og umsögn hlutaðeigandi sveitarfélags, veitt tímabundna undanþágu frá einstökum greinum skipulags- og byggingarlöggjafar og eftir atvikum einnig frá skipulagi hlutaðeigandi sveitarfélags, til að heimila tímabundið breytta notkun húsnæðis til búsetu, að uppfylltum skýrum skilyrðum.

Í drögum að frumvarpinu er lagt til að undanþágur Skipulagsstofnunar verði til 18 mánaða. Einnig er lagt til að stofnunin geti synjað um undanþágu mæli heildstætt mat á aðstæðum gegn því að hún verði veitt.

Fáist undanþága, samkvæmt drögum að frumvarpinu, þarf ekki að afla sérstaklega byggingarleyfis fyrir breyttri notkun húsnæðisins til búsetu eða ráðast í breytingar á aðal- og deiliskipulagi, enda uppfylli húsnæðið skilgreind skilyrði um öryggi, brunavarnir og hollustuhætti ásamt fleiru.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert