Stjórn ÍKSA tekur gagnrýni á kynjahalla til greina

Gísli Örn Garðarsson og Vesturport rakaði til sín verðlaunum á …
Gísli Örn Garðarsson og Vesturport rakaði til sín verðlaunum á Edduverðlaunahátíðinni í ár. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA) hefur sent frá sér tilkynningu vegna gagnrýni Fé­lags kvenna í kvik­mynd­um, sem lýs­ti á dögunum yfir von­brigðum með kynja­hlut­fall í val­nefnd­um Eddu­verðlaun­anna í ár.

Í tilkynningunni tekur stjórn ÍKSA til greina gagnrýni hvað kynjahalla í valnefndum varðar árið 2023. Segir stjórnin að konur í valnefndum í ár hafi verið 14 en karlar 24 talsins þrátt fyrir að upphafleg mönnun valnefnda hafi verið með jöfnum kynjahlutföllum.

„Við mönnun valnefnda horfir stjórn ÍKSA samkvæmt starfsreglum til faglegrar þekkingar, kynjahlutfalls og að viðkomandi sé ekki með innsent verk í þeim flokki sem valnefnd mun skoða. Þá má viðkomandi ekki hafa persónuleg tengsl við þá sem eru tilnefndir. Reynt er að manna nefndirnar þannig að fólk sitji ekki lengur en í 2-3 ár í senn.

Þegar verið er að manna valnefndir er valnefndafulltrúum gert að fara yfir vinnureglur valnefnda og innsend verk í sínum flokki og staðfesta að ekki sé um persónuleg tengsl að ræða. Á þeim knappa tíma sem líður frá því að innsendingar liggja fyrir og þar til valnefndir hefja störf verða oft breytingar á valnefndum, bæði vegna persónulegra tengsla og einnig vegna tímaskorts mögulegra valnefndafulltrúa. Á lokaspretti þessarar vinnu í ár fór því miður svo að kynjahlutfall raskaðist töluvert, mun meira en stjórn hefði kosið,“ segir í tilkynningu stjórnar ÍKSA.

Hlín Jóhannesdóttir er formaður stjórnar Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar.
Hlín Jóhannesdóttir er formaður stjórnar Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Ljósmynd/Aðsend

Kynjahlutföll valnefnda síðustu ára:

2023 sátu 14 konur og 24 karlar í valnefndum.
2022 sátu 23 konur og 17 karlar í valnefndum.
2021 sátu 22 konur og 15 karlar í valnefndum.
2020 sátu 23 konur og 15 karlar í valnefndum.

Alls 153 valnefndafulltrúar, þar af 82 konur eða 54 prósent og 71 karl eða 46 prósent.

Þá segir í tilkynningunni að rýnivinna standi yfir hvað starfsreglur og umgjörð Edduverðlaunanna varðar þar sem fyrirkomulag á mönnun valnefnda er meðal þess sem verið er að skoða. Fulltrúi Fé­lags kvenna í kvik­mynd­um hefur verið boðuð á fund rýnihóps til að fara betur yfir málið, eins og segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert