Tæplega hundrað milljónir á íslenskan miða

Enginn var með 1. vinning þennan föstudaginn þegar dregið var út í Eurojackpot. Fimm miðahafar skipta þó með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmlega 99,3 milljónir.

Þar af var einn miðinn keyptur á Íslandi. Nánar tiltekið í Bitahöllinni við Stórhöfða í Reykjavík.

Hinir miðarnir voru keyptir í Slóvakíu, Noregi og tveir í Þýskalandi.

Tveir fá hundrað þúsund krónur

3. vinningur skiptist á milli níu miðaeigenda og fær hver þeirra rúmlega 19,6 milljónir, þeir miðar voru keyptir í eftirtöldum löndum; Hollandi, tveir í Svíþjóð, Finnlandi og fimm í Þýskalandi.

Þrír voru með 2. vinning í Jóker og fær hver þeirra 100 þúsund krónur. Tveir miðanna voru  keyptir í appinu en einn er í áskrift. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert